Mæður 2009

Nú stendur yfir ljósmyndasýningin Mæður 2009 á Reykjavíkurtorgi aðalsafns, Tryggvagötu 15. Sýningin er á vegum Wilberforce Women, en það eru samtök sem stuðla að samskiptum og vinskap kvenna í gegnum ljósmyndir, og stendur hún til 6. september.

Mæður 2009 tengir saman fjórar borgir; Kingston upon Hull, tvíburaborg hennar, Freetown í Sierra Leone, Szczecin í Póllandi og Reykjavík í gegnum ljósmyndir og fjölmenningu.

Markmiðið var að fá tíu myndir frá hverri borg þar sem unnið væri með hugtakið móðir. Það bárust hins vegar miklu fleiri því næstum 60 konur tóku þátt.

Á þessari sýningu má sjá afraksturinn og er a.m.k. ein mynd frá hverri konu sem tók þátt. Myndirnar bárust með tölvupósti, bréfpósti eða voru gerðar í ljósmyndasmiðjum sem voru haldnar á sumum stöðunum. Hluti myndanna var prentaður út og þær prýða veggina, en allar myndirnar má sjá á skjánum.

Túlkun kvennanna er ólík en þó má líka sjá marga sameiginlega þræði þvert á landsvæði. Með myndunum fylgja persónulegar athugasemdir, minningar og hugsanir kvennanna sem eiga þessar myndir.

Wilberforce Women eru grasrótarsamtök sem vinna að þróunarverkefnum fyrir konur. Ef þú vilt styðja starfið eða taka þátt á einhvern hátt, líttu þá á www.wilberforcewomen.com eða skrifaðu til Fionu Caley: fiona_caley@yahoo.co.uk

  Mæður 2009  Mæður 2009  Mæður 2009



Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�