Þýska myndasögur - síðustu dagar!

Laugardaginn 10. október opnaði sýning á þýskum myndasögum í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi. Sérstakur gestur sýningarinnar var myndasöguhöfundurinn Line Hoven og stýrði hún einnig myndasögusmiðju sunnudaginn 11. október frá kl. 13 – 16. 
Myndirnar á sýningunni eru annars vegar frummyndir eftir Line Hoven og hins vegar eftirmyndir úr nokkrum þýskum myndasögum og sýningin gefur þannig innsýn í þessa vaxandi bókmenntategund þar í landi. Goethe Institut í Kaupmannahöfn hefur einnig gefið Borgarbókasafni úrval þýskra myndasagna og þeim verður stillt út samhliða sýningunni. Hún stendur til 9. nóvember en þann dag verður þess minnst að tuttugu ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Markmiðið er að sýningin verði svo sett upp á fleiri bókasöfnum víða um land.

Sýningin og smiðjan eru samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins í Reykjavík og Goethe Institut í Kaupmannahöfn.

Myndasögusmiðja
Myndir eftir Line Hoven



Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�