Vefsíða Borgarbókasafns

Safnanótt í Reykjavík og víðar


SAFNANÓTT Í BORGARBÓKASAFNI GRÓFARHÚSI
OPIÐ TIL MIÐNÆTTIS


Ljóðaslamm 2010

Kl. 20:30
Ungt fólk etur kappi í orðlist. Ljóð verða flutt á nýstárlegan hátt og ljóðagjörningar framdir í bland við tónlist, myndefni, dans og fleira. Dómnefnd velur þrjú bestu atriðin.
Þema kvöldsins er VÆMNI.
Bókatorg á 1. hæð

Ljóðahlaðborð við kertaljós
Kl. 19:00 – 24:00
Gestir geta sest niður við hið sívinsæla ljóðaborð og dundað sér við að setja saman eigin ljóð úr orðabrunnum safnsins.
Reykjavíkurtorg á 1. hæð

Draumar
Kl. 19:00 – 24:00
Bókum og öðru efni um drauma og draumaráðningar verður stillt út á 5. hæðinni í stíl við draumaþema Safnanætur.
5. hæð

Grunnsópað hef ég gjörvallar hirzlur
Kl. 19:00 – 24:00
Sýning á verkum Guðrúnar Auðunsdóttur listamanns í Artóteki á Reykjavíkurtorgi, 1. hæð.

Himininn yfir Berlín
Kl. 19:30 og 21.45

Sýnd verður kvikmyndin Himininn yfir Berlín eftir Wim Wenders í hinu nýopnaða Kamesi á 5tu hæðinni.
5. hæð

DAGSKRÁ BORGARBÓKSAFNs TIL ÚTPRENTUNAR

_____________________


Safnanótt verður haldin í Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum föstudaginn 12. febrúar.
Kærleikar sem hefjast kl. 18:00 við Austurvöll munu leiða okkur í litríkri göngu inn í Safnanóttina sem opnar með pompi og prakt með ljósagjörningi bandaríska listamannsins Bill Fitzgibbons við Ráðhús Reykjavíkur. Sverrir Guðjónsson semur tónmynd við verkið. Yfir 30 söfn víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu bjóða uppá fjölbreytta dagskrá sem gestir á öllum aldri fá notið fram til miðnættis .  Sérstakur safnanæturstrætó gengur á milli safnanna og auðveldar gestum að heimsækja fjölmörg söfn á einu kvöldi.  Nóttin gæti svo endað á Lange Nacht der Museen  í Berlín því einn heppinn þátttakandi í safnanæturleiknum hlýtur ferð með Iceland Express fyrir tvo á Safnanótt í Berlín í ágústlok. 
Kynnið ykkur heildardagskrá Safnanætur


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�