Vefsíða Borgarbókasafns

Móment með John Coyne að renna út


Nú eru síðustu forvöð á sjá ljósmyndaseríuna Móment með John Coyne eftir Ernu G.S. í Kamesinu á 5. hæð í aðalsafni, Tryggvagötu 15, en sýningu hennar lýkur föstudaginn 5. mars.

Erna stundaði myndlistarnám í Mynd- og Handíðaskóla íslands 1985-1989 og við Slade School of Fine Art í London 1990-1992. Hún stundaði auk þess nám í kennsluréttindum við Listaháskóla Íslands 2003-2005. Hún hefur haldið 8 einkasýningar og  auk þess tekið þátt í  fjölda samsýninga, bæði hér á landi og víða erlendis frá árinu 1990.

Erna hefur unnið með ljósmyndir frá árinu 2004 og vinnur auk þess málverk samhliða þeim. Hún vinnur ýmist með efnivið minninga, daglegs lífs eða hvorutveggja. Þar sem fléttast saman persónulegt líf, þjóðfélagsumhverfi, menning, pólitík, tilfinningar, hugsanir o.fl. Erna vinnur með augnablikið þar sem vinnuferlið skapar verkið. Tiltekið augnablik umbreytist, bæði í mynd og hugmyndalega og oft er unnið aftur og aftur með sömu ljósmynd þannig að verkin verða flóknari og margræðnari.

Ljósmyndaserían Móment með John Coyne var tekin árið 2009. John Coyne er myndlistarmaður búsettur í Manchester og var verkið upphaflega unnið fyrir sýningu í íbúð hans þar. Myndaserían er þó jafnframt sjálfstætt verk þar sem unnið er með mynd og ímynd af John Coyne og hann því frekar uppspretta verksins en efniviðurinn, eða hvorutveggja.

Sýningin stendur til  5. mars. Opið er mánudaga -fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-19 og um helgar kl. 13-17.

Kamesið er lítið fjölnotarými á 5. hæð Grófarhús sem hentar m.a. til sýninga á ljósmyndaseríum og videoverkum.

Móment með John Coyne


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�