Vefsíða Borgarbókasafns

Barnamenningarhátíð í Reykjavík


Merki BarnamennignarhátíðarBarnamenningarhátíð verður í Reykjavík dagana 19. - 25. apríl. Dagskráin teygir sig um víðan völl og meðal annars inn á Borgarbókasafnið. Boðið verður upp á þýska barna- og fjölskyldukvikmyndahátíð dagana 17. apríl - 2. maí í Kamesinu og að venju verður sumrinu fagnað með stæl í aðalsafni; opnun tveggja sýninga, veitt verða bókaverðlaun barnana, tónlistarflutingur, listasmiðja og svo mætti áfram telja. Heildardagskrá hátíðarinnar


DAGSKRÁ Í AÐALSAFNI

Þýsk barna- og fjölskyldukvikmyndahátíð 17. apríl - 2. maí
Sýndar verða 14 myndir sem gefa innsýn í fjölbreytileika þýskra barna- og fjölskyldumynda frá miðri síðustu öld og fram til okkar daga. Sú elsta er frá árinu 1950 og sú yngsta frá því 2006. Hver mynd verður sýnd í einn dag, kl. 13, 15 og 17, en auk þess er hægt að biðja um sýningar á ákveðnum myndum kl. 10 á virkum dögum. Kvikmyndahátíðin er í samvinnu við Goethe Institut.


SUMARDAGURINN FYRSTI
fimmtudagur 22. apríl kl. 14-17

Opnun sýningar á teikningum Wolf Erlbruch
Wolf Erlbruch hefur myndskeytt fjölda þýskra barnabóka, skrifað nokkrar sjálfur og hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir teikningar sínar og bækur, m.a. Deutscher Jugendliteraturpreis 1993 og Hans Christian Andersen Award árið 2006. Erlbruch er einna þekkastur á Íslandi fyrir teikningar sínar í bókinni Moldvarpan sem vildi vita hver skeit á hausinn á henni. Sýningin er í samvinnu við Goethe Institut.

Bókaverðlaun barnanna
Almenningsbókasöfn landsins veita verðlaunin hvert ár fyrir tvær bækur, aðra frumsamda og hina þýdda. 6-12 ára börn velja bækurnar og fer valið fram á heimasíðu Borgarbókasafns og í grunnskólum og bókasöfnum um allt land. Verðlaunin verða nú veitt í níunda sinn.

Íslenska hljómsveitin
Íslenska hljómsveitin, sem var í 2. sæti í Ljóðaslammi 2010, flytur nokkur lög. Hljómsveitina skipa Greipur Garðarsson, Gunnar Atli Davíðsson, Jón Pálsson, Jóhannes Bjarki Bjarkason og Viktor Freyr Hjörleifsson. Þeir eru allir nemendur í unglingadeild Víkurskóla í Grafarvogi.

Skrípó 2010
Borgarbókasafn og Myndlistaskólinn í Reykjavík stóðu fyrir myndasögusamkeppni fyrir fólk á aldrinum 10-20+ á vordögum og verður afrakstur hennar sýndur á Reykjavíkurtorgi. Í ár eru sextíu ár liðin síðan myndasaga Charles Schulz, Smáfólk (Peanuts), birtist fyrst og í tilefni þess var þema keppninnar tileinkað dagblaðamyndasögum undir yfirskriftinni „Skrípó: lítil saga í fáeinum römmum“. Veitt verða verðlaun fyrir bestu myndina og viðurkenningar fyrir nokkrar valdar sögur.

Listasmiðja
Boðið verður upp á listasmiðju fyrir börn og unglinga. Í tilefni barnamenningarhátíðarinnar er sjónum beint að börnunum og unglingunum sjálfum og er yfirskrift smiðjunnar ég.

Borgarbókasafn tekur einnig þátt í fleiri viðburðum á Barnamenningarhátíðinni

Heimsdagur barna í Gerðubergi. Laugardaginn 24. apríl kl. 13-17 er gestum boðið að upplifa ólíka menningarheima á skapandi og skemmtilegan hátt. Listsmiðjur tengdar litríkri menningu ýmissa þjóða verða frá 13-16. Frá kl. 16-17 verður skemmtidagskrá þar sem sýndur verður afrakstur nokkurra smiðja.
Fljúgandi teppi, menningarmót leikskólabarna verður á bókasafninu.

Borgarbókasafnið tekur einnig þátt í viðburðum utan safnanna.

Ljóðasuða verður 19., 20. og 21. apríl kl. 16-18 í eldhúsi Ævintýrahallarinnar, Fríkirkjuvegi 11. Einnig verða Æringi og Sóla sömu daga í garði hallarinnar. Sóla verður með sérstakar krummasögustundir í Ævintýrahöllinni föstudaginn 23. apríl kl. 10 og laugardaginn 24. apríl kl. 13.30.

Auk þess kemur safnið að verkefninu Taktu rithöfund í fóstur. Nemendur í fjórum skólum hafa að undanförnu unnið verkefni með ákveðnum rithöfundum og heimsótt Borgarbókasafn af því tilefni. 


Senda á Facebook


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�