Vefsíða Borgarbókasafns

Sýning Hönnunar- og handverksskólans


Hugkvæmni og góðri hönnun þarf að fylgja eftir með gæða handverki og bestu tæknilegu útfærslu.

Nú stendur yfir sýning á verkefnum útskriftarnemenda Hönnunar- og handverksskóla Tækniskólans á Reykjavíkurtorgi Borgarbókasafnsins í Tryggvagötu 15.

Á sýningunni eru verkefni í faggreinum kjólasaums og klæðskurðar,  gull- og  silfursmíði og verkefni úr diplómanáminu MÓTUN-leir og tengd efni, en það nám er unnið í samvinnu Hönnunar- og handverksskóla Tækniskólans og Myndlistaskólans í Reykjavík. Tækniskólinn er eini  skólinn hérlendis, sem býður upp á slíkt nám.

Við útskrift af fataiðnbraut og gull- og silfursmíðabraut eru nemendur tilbúnir til að taka sveinspróf í viðkomandi iðngrein. Í náminu er mikil áhersla lögð á efni, tækni, vandað handverk og fagmennsku, þótt hönnunarhugtakið sé jafnframt kynnt.
Á sýningunni er fatnaður sem nemendur fataiðnbrautar hafa unnið fyrir viðskiptavini. Nemendur hafa unnið snið fatnaðarins frá grunni samkvæmt hugmyndum eða óskum  viðskiptavinarins, valið efni í samráði við hann og útfært hugmyndina af fagmennsku yfir í fullunna flík.

Verkefni nemenda í gull- og silfursmíði miða að því að gera nemendum kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem gull- og silfursmiðum er nauðsynleg í störfum sínum. Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Diplómanámið MÓTUN – leir og tengd efni, er nýtt 2 ára handverks- og hönnunarnám sem nú útskrifar nemendur í annað sinn, en fyrsti nemendahópurinn útskrifaðist vorið 2009. MÓTUN gerir nemendum jafnframt mögulegt að ljúka BA gráðu frá erlendum listaháskóla með því að bæta við 3. námsári við viðkomandi skóla. Á sýningunni eru verk sem útskriftarnemendur MÓTUNAR hafa unnið á ýmsum stigum námsins og sýna þau þann fjölbreytileika sem námið býður upp á. Þar má m.a. sjá verk úr fyrstu áföngum námsins þar sem jarðleir er í aðalhlutverki, einnig kemur mannslíkaminn við sögu  og verk sem nemendur hafa hannað og þróað í samstarfi við íslensk fyrirtæki.

Með starfs- og verkmiðuðu námi á framhaldsskólastigi og námi á hönnunar- og listanámsbrautum framhaldsskólanna menntast hérlendis stór og öflugur hópur ungs fólks sem hefur góðan grunn til að byggja áframhaldandi nám sitt á, hvort sem er á sviði hönnunar-  og listnáms -  eða í starfs- og handverksnámi. Námið nýtist jafnframt ákaflega vel sem almennur grunnur fyrir mjög margar greinar í fagskólum og á háskólastigi.

Sýningin er opin á opnunartíma Borgarbókasafns til og með sunnudagsins 6. júní nk.

*MÓTUN-leir og tengd efni er unnið í samvinnu Hönnunar- og handverksskóla Tækniskólans og Myndlistaskólans í Reykjavík.



Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�