Vefsíða Borgarbókasafns

Kvöldgöngur í hverfunum


Borgarbókasafn, Listasafn, Ljósmyndasafn og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöngur á fimmtudagskvöldum í sumar. Lagt er af stað í göngurnar kl. 20. Allir velkomnir og þátttaka ókeypis.

Dagskrá til útprentunar (pdf 0,68 mb, opnast í nýjum glugga)

3. júní
Minjasafn Reykjavíkur – Miðbæjarkirkjurnar
Helga Maureen Gylfadóttir sagnfræðingur leiðir göngu um hinar sögulegu kirkjur í og við Kvosina. Lagt er upp frá Grófarhúsi.

10. júní
Borgarbókasafn Reykjavíkur – Mararþaraborg

Hafnarganga frá miðbakka. Lagt er upp frá Grófarhúsi og gengið í átt að Granda og lesinn skáldskapur um hafið, höfnina og skipin – og jafnvel sjómennina. Leiðsögukona er Úlfhildur Dagsdóttir.

24. júní
Ljósmyndasafn Reykjavíkur - Smáíbúðahverfið – sjálfsbjargarstefna í húsnæðismálum

Sara Valdimarsdóttir kennari rekur sögu og þróun hverfisins. Gangan hefst við hús nr. 69 við Sogaveg (miðja vegu á milli Grensásvegar og Réttarholtsvegar).

1. júlí
Listasafn Reykjavíkur – Útilistaverk borgarinnar

Sigurlaug Ragnarsdóttir listfræðingur og menningarmiðlari leiðir göngu þar sem útlistverk borgarinnar verða skoðuð út frá hugmyndafræðilegum grundvelli og þannig dregnar fram nýjar áherslur. Upphaf göngunnar verður Miðja Reykjavíkur við vesturgafl Fálkahússins.

8. júlí
Reykjavík Safarí – Í boði allra safnanna

Menningarlífið í miðborginni kynnt fyrir fólki sem hefur flust til Íslands eða sækir landið heim. Hvar eru leikhúsin, frægar styttur og skemmtilegir staðir? Hvað er ókeypis? Hvað gerist um helgar? Hvað er fyrir börn,fjölskyldur og fullorðna? Á spænsku, pólsku, ensku og tælensku. Lagt er upp frá Grófarhúsi.

15. júlí
Minjasafn Reykjavíkur – Hernám Reykjavíkur

Guðbrandur Benediktsson sagnfræðingur fer á slóðir breskra hernámsmanna og segir frá atburðum sem áttu sér stað á fyrstu vikum hernáms Reykjavíkur. Lagt er upp frá Grófarhúsi.

22. júlí
Ljósmyndasafn Reykjavíkur - Gengið um gamla Laugarneshverfið

Gengið verður eftir gamla Laugarnesveginum og Sundlaugarvegi með Þorgrími Gestssyni, blaðamanni og höfundi bókarinnar Mannlíf við Sund, sem rifjar upp sögu hverfisins. Lagt verður af stað frá bæjarhólnum í Laugarnesi
sem er milli Sæbrautar og Listasafns Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga.

29. júlí
Borgarbókasafn Reykjavíkur – Hús skáldanna
Í göngunni verður Vogahverfið kynnt sem heimaslóðir skálda, en fjölmörg þeirra hafa búið og búa enn í hverfinu. Leiðsögumaður er Arngrímur Vídalín. Lagt upp frá Sólheimasafni.

5. ágúst
Listasafn Reykjavíkur – Götulist

Myndlistamaðurinn Sara Riel leiðir göngu þar sem borgarmyndin verður skoðuð út frá hugmyndum um Urban art eða götulist. Upphafsstaður göngunnar verður Hjartatorg milli Hverfisgötu, Klapparstígs og Laugavegar.

12. ágúst
Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns: Pöbbaganga í miðbænum
Næturlífið hefur löngum verið helsta stundargaman Reykvíkinga, enda blómstra veitingastaðir í borginni sem aldrei fyrr. Sumir þeirra eiga sér langa og skrautlega sögu, aðrir hafa orðið að miðstöð menningarvita. Lagt er upp frá Grófarhúsi.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�