Menningarnótt 2010
Yfirskrift menningarnætur að þessu sinni er: „Strætin óma“. Á Borgarbókasafni verður áhersla lögð á ljóðlistina og koma ljóð til með að óma í hverju horni aðalsafns.
DAGSKRÁ í aðalsafni, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15
TÍU ÁR VIÐ HÖFNINA
Kl. 13-22
Á Menningarnótt verða tíu ár liðin frá því að nýtt aðalsafn Borgarbókasafns opnaði í Grófarhúsi. Í tilefni þess eru gestir hvattir til að setjast niður á safninu og skrifa kveðjur, semja vísur, teikna myndir, koma með tillögur eða hvaðeina sem hugurinn býður. Safnið skaffar efnið og kveðjurnar verða svo til sýnis jafnóðum og þær verða til.
BIRNA BJARNADÓTTIR: A BOOK OF FRAGMENTS
Kl. 13-22
Sýning á textum um líf og skáldskap eftir Birnu Bjarnadóttur sem saman mynda bók í brotum. Formála skrifar George Toles og textabrotin eru myndskreytt af Cliff Eyland, Haraldi Jónssyni og Guy Maddin. Hönnuður er Cliff Eyland. a book of fragments var frumsýnd í Norræna húsinu 27. maí og var hluti af alþjóðlegu ráðstefnunni Art in Translation. Brotin eru væntanleg í bókaformi. Sýningin, sem stendur til 15. september, er á öllum þremur hæðum Borgarbókasafns í Grófarhúsi.
KRAKKAVÍSUR
Vísnastund fyrir börn á öllum aldri
Kl. 14-14:30 og aftur kl. 15-15:30
Sögukonan Ólöf Sverrisdóttir, sem borgarbörn þekkja úr sögubílnum Æringja, les og fer með skemmtilegar vísur og þulur eftir ýmsa höfunda.
DAÐI GUÐBJÖRNSSON: MÁLVERK OG MYNDBAND
Kl. 16
Opnun á sýningu á verkum Daða Guðbjörnssonar á Reykjavíkurtorgi. Flestir þekkja til málverka og grafíkmynda Daða en á þessari sýningu kveður við annan tón þar sem hann sýnir einnig myndband auk nýrra olíumálverka. Fyrsta einkasýning Daða var árið 1980 í Gallerí Suðurgötu 7 en þær eru nú orðnar vel á fimmta tug og samsýningarnar mun fleiri.
Sýningin stendur til 3. október.
LJÓÐ Á LABBI og GREITT TIL HLIÐAR PLÚS TVEIR
Kl. 17-18
Bókmenntaganga um Grófarhús þar sem gestir verða leiddir um kima hússins og munu skáld og aðrir flytjendur birtast hér og þar og flytja þeim ljóð. Meðal skáldanna verða Hermann Stefánsson, Kristín Eiríksdóttir, Ingunn Snædal, Þórhallur Þórhallsson og Einar Ólafsson en Úlfhildur Dagsdóttir leiðir labbið og gaukar fróðleiksmolum að göngufólki. Í lok dagskrárinnar flytur ljóðskáldið Atli Jasonarson og bandið Greitt til hliðar plús tveir nokkur lög og ljóð, meðal annars siguratriði þeirra úr Ljóðaslammi Borgarbókasafns 2010.
KÓNGULÓ Á HÁUM HÆLUM
Ljóðatónleikar
Kl. 20-21
Söngkonan Magga Stína og Trío Eðvarðs Lárussonar flytja tónlist eftir Ingva Þór Kormáksson við ljóð eftir íslensk skáld. Tríóið skipa, auk Eðvarðs, þeir Jón Indriðason og Tómas Tómasson. Ljóðin eru eftir Þórarin Eldjárn, Kristínu Ómarsdóttur, Steinunni Sigurðardóttur, Stein Steinarr, Hannes Pétursson og fleiri, meðal annars nokkur sem starfa eða hafa starfað á Borgarbókasafni, líkt og þau Magga Stína og Ingvi Þór.
Sjá heildardagskrá á Menningarnótt
Til baka