Vefsíða Borgarbókasafns

Daði Guðbjörnsson með listamannaspjall


Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýnginu Daða í Artótekinu. Daði verður með listamannspjall laugardaginn 2. október kl. 13.30-15.

Á Menningarnótt, laugardaginn 21. ágúst kl. 16.00 var opnuð sýning á verkum Daða Guðbjörnssonar listmálara í Artóteki.
Sýningin er á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
http://www.artotek.is

Daði er lærður húsgagnasmiður en sneri sér fljótlega að myndlist. Hann útskrifaðist frá Listaakademíunni í Amsterdam í Hollandi árið 1984 en áður hafið hann lokið námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og stundað nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Daði hefur eingöngu starfað við myndlist frá námslokum og verið áberandi í íslensku listalífi. Jafnframt eigin listsköpun hefur hann setið í safnráði Listasafns Íslands og verið formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna. Einnig kenndi hann myndlist í þrettán ár.

Daði vinnur mest með grafík og málar með vatnslitum og olíu. Í viðtali í kynningarbæklingi um Daða sem Artótekið gefur út í tilefni sýningar hans, segist hann vera „klaufi að eðlisfari“ en tekur fram að tenging handarinnar við vitundina sé beinasta leiðin til sköpunar og að hann eigi sjálfur best samband við handgerða hluti. „Ég útiloka þó ekkert við sköpun listaverka“ segir hann jafnframt.

Flestir þekkja til málverka og grafíkmynda Daða en á sýningunni núna kveður við annan tón þar sem hann sýnir einnig myndband auk nýrra olíumálverka.

Fyrstu einkasýningu sína hélt Daði árið 1980 í Gallerí Suðurgötu 7 en þær eru nú orðnar vel á fimmta tug. Daði hefur einnig  tekið þátt í fjölda samsýninga semog  listamannahópum s.s. Gullpenslinum og Akvarell Island, en báðir hóparnir hafa sýnt alloft, hér heima og erlendis. Verk Daða hafa einnig verið valin til sýninga s.s. á sýninguna Málverkið eftir 1980 í Listasafni Íslands árið 2006, en markmið hennar var að varpa ljósi á nýja málverkið, og á sýninguna Blæbrigði vatnsins sem var fyrri hluta ársins 2010 í Listasafni Reykjavíkur en á henni var sjónum beint að vatnslitum í íslenskri myndlist 1880-2010.

Daði hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun listamanna, bæði frá Reykjavíkurborg og íslenska ríkinu. Mörg listasöfn s.s. Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Nýlistasafnið og Listasafn Akureyrar eiga verk eftir hann. Daði er félagsmaður í Sambandi íslenskra myndlistarmanna.

Sýningin stendur til 3. október.
Opið er mánudaga-fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-19
og um helgar kl. 13-17

Iceland Review birti umfjöllun um sýningu Daða. Hana má lesa hér.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�