Vefsíða Borgarbókasafns

Kvöldgöngur úr Kvosinni


Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á miðbæjargöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum kl. 20. Lagt af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Dagskrá til útprentunar (pdf 2.17mb)

9. júní
Söngur og saltfiskur

Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Gengið um Grjótarþorpið og gamla Vesturbæinn með Helga Þorlákssyni sagnfræðingi þar sem saga tónlistar, hljómlistamanna, söngvara, kóra og tónskálda verður rakin. Í samstarfi við Háskóla Íslands í tilefni aldarafmælis skólans.

16. júní
Jón Sigurðsson 200 ára
Minjasafn Reykjavíkur
Gengið verður um slóðir Jóns Sigurðssonar í miðbænum með sagnfræðingunum Guðbrandi Benediktssyni og Helgu Maureen Gylfadóttur.

23. júní
Útilistaverk við Sæbraut
Listasafn Reykjavíkur
Hafþór Yngvason safnstjóri leiðir göngu um strandlengjuna og ræðir um verkin Sólfarið eftir Jón Gunnar Árnason, Íslandsvarðan eftir Jóhann Eyfells, Samstarf eftir Pétur Bjarnason og Fjöruverk eftir Sigurð Guðmundsson.

30. júní
Maddama, kerling, fröken, frú
Minjasafn Reykjavíkur
Helga Maureen Gylfadóttir og Siguborg Hilmarsdóttir sagnfræðingar leiða göngu um slóðir 19. aldar kvenna í Kvosinni.

7. júlí
Reykjavík safarí
Öll söfnin
Menningarlífið og sögulegir staðir í miðborginni verða kynnt á spænsku, pólsku, litháensku, ensku, frönsku og tælensku. Hvar eru leikhúsin, listasöfnin og aðrir skemmtilegir staðir? Hvað er í boði fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna? Dagskránni lýkur með samverustund allra hópanna í Listasafninu.

14. júlí
Kátir eru krakkar
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Bókmenntanga fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Skyggnst verður í nokkrar spennandi nýlegar bækur fyrir börn á söguslóðum þeirra og sumir höfundanna slást með í för. Leiðsögumaður er Sigrún Jóna Kristjánsdóttir.

21. júlí
Á söguslóðum vinstrihreyfingar í Reykjavík
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Svavar Gestsson, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans og formaður Alþýðubandalagsins, og Guðrún Ágústsdóttir, fyrrverandi forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, fara um söguslóðir vinstri hreyfingarinnar í Reykjavík. Einnig munu þau kalla til liðs við sig fólk sem kynntist sérstaklega þeim húsum sem koma við sögu.

28. júlí
Kviss Búmm Bang
Listasafns Reykjavíkur
Framandverkaflokkurinn Kviss Búmm Bang leiðir göngu um miðborgina þar sem áhersla er lögð á að líta umhverfi okkar nýjum augum.

4. ágúst
Reykjavík bókmenntanna
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Reykjavíkur er ekki oft getið í bókmenntum fyrr en á síðustu öld, enda ung borg og þótti lengi ekki merkilegur sögustaður. Í þessari göngu verða þó raktar slóðir bókmennta í miðborginni allt frá söguöld til okkar tíma og litið á mismunandi birtingarmyndir hennar í skáldskap af ýmsum toga. Leiðsögumaður er Úlfhildur Dagsdóttir.

11. ágúst
Kvöldganga um Laugaveginn
Listasafn, Minjasafn, Ljósmyndasafn og Borgarbókasafn Reykjavíkur standa fyrir sameiginlegri kvöldgöngu um Laugaveginn. 


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�