Verðlaunaafhending og sýning
Sunnudaginn 6. maí kl. 15.00 opnar sýningin MANGA á Reykjavíkurtorgi Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15.
Þar verður kunngert hver hefur farið með sigur af hólmi í MANGA myndasögusamkeppninni en skilafrestur í hana rann út 23. apríl sl. Á sýningunni verður afrakstur samkeppninnar en í hana bárust tæplega 60 tillögur frá fólki á aldrinum 10-20+.
Sigurvegarinn hlýtur verðlaun en að auki verða veittar fimm viðurkenningar fyrir framúrskarandi myndir og sögur.
Þetta er fjórða árið í röð sem Borgarbókasafn og Myndlistaskólinn í Reykjavík standa fyrir myndasögusamkeppni og –sýningu. Þema samkeppninnar nú var MANGA eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna. Að venju var samkeppnin tileinkuð myndasöguhetju og í ár varð japanski vélstrákurinn Astro boy fyrir valinu, en hann verður sextugur á árinu.
Um helgina verður einnig hinn alþjóðlegi dagur ókeypis myndasögunnar en hann ber upp á laugardaginn 5. maí. Það má því með sanni segja að helgin verði helguð myndasögum í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15.
Síðasti sýningardagur er 10. júní.
Nexus styrkir keppnina.
Allir velkomnir.

Til baka