Vefsíða Borgarbókasafns

Leshringur fyrir 12-14 ára


Borgarbókasafn, í samvinnu við Bókmenntaborgina, býður upp á leshring fyrir fólk á aldrinum 12-14 ára í aðalsafni, Tryggvagötu 15 og hefst hann í byrjun júlí. Leshringurinn er góður vettvangur fyrir þá sem lesa lítið en langar að hella sér í lesturinn semog fyrir hina sem lesa meira og vilja deila lestrarreynslu sinni með öðrum.

Í leshringnum verða tvær til þrjár bækur lesnar og rætt um um þær frá mismunandi sjónarhornum. Starfsmenn bókasafnsins kynna bækurnar og hefja umræðuna.

Boðið verður upp á ýmislegt annað skemmtilegt svo sem kynningu á uppáhaldsbókinni, bókmenntagöngu og aðra spennandi hluti sem þátttakendur ákveða í samráði við starfsmenn safnsins.

Leshringurinn verður í fjögur skipti dagana 2., 4., 9., og 11. júlí í aðalsafni, Tryggvagötu 15 og hefst kl. 10 alla dagana.

Allir á aldrinum 12-14 ára velkomnir!

Áhugasamir skrái sig í söfnunum eða með því að senda póst á Sögu Kjartansdóttur, saga.kjartansdottir@gmail.com

Merki Borgarbókasafns    Merki bókmenntaborgar

Leshringur fyrir 12-14 ára - auglýsing

 


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�