Vefsíða Borgarbókasafns

Heimsóknir á vinnustaði


Borgarbókasafnið býður upp á heimsóknir á vinnustaði þar sem hin fjölbreytta starfsemi safnsins er kynnt. Kynningin er einkum ætluð erlendum starfsmönnum. Starfshópum er einnig velkomið að koma í kynningu og ratleik á aðalsafni Borgarbókasafns. Upplýsingar veitir Kristín R. Vilhjálmsdóttir, kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is, s. 411 6122.

Á bókasöfnum gefst mjög gott tækifæri til að koma auga á það sem er líkt í annars ólíkum menningarheimum og einnig að skapa grundvöll fyrir jákvæða sýn á það sem er ólíkt og hvernig það getur auðgað heim okkar allra. Almenningsbókasöfn eru öllum opin og öllum er velkomið að njóta þess sem þau hafa upp á að bjóða. Gestir geta fengið tónlist, bækur og annað efni að láni frá öllum heimshornum, eða notið þess á staðnum, lesið fréttir frá sínu upprunalandi á netinu, kíkt í dagblöðin sem liggja frammi, leitað að uppáhaldshöfundinum sínum og sest niður í næsta stól eða sófa, hvort sem er einir með sjálfum sér eða með öðrum. Bókasafnið er einstök gátt að samfélaginu.

Hér má lesa frétt um heimsókn á Grund


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook





Skipta um leturst�r�