Júní
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember
Á dagskrá í júní
Sýningar
Á aðalsafni stendur yfir sýning á lokaverkefnum nemenda við Hönnunar- og handverksskólann. Sýningin stendur til 6. júní.
Sumarlestur
Sumarlestur stendur yfir í öllum söfnum Borgarbókasafns frá 1. júní til 31. ágúst. Sumarlesturin er ætlaður börnum og unglingumm og er þátttakan í honum sáraeinföld. Kíktu á sumarlesturinn!
Kvöldgöngur í hverfunum
Borgarbókasafn, Listasafn, Ljósmyndasafn og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöngur á fimmtudagskvöldum í sumar. Lagt er af stað í göngurnar kl. 20. Allir velkomnir og þátttaka ókeypis. Kynntu þér heildardagskrána!
10.
Mararþaraborg - Hafnarganga frá miðbakka. Kvöldganga í boði Borgarbókasafns
Lagt er upp frá Grófarhúsi og gengið í átt að Granda og lesinn skáldskapur um hafið, höfnina og skipin – og jafnvel
sjómennina. Leiðsögukona er Úlfhildur Dagsdóttir.
14.-18.
Ritsmiðjur í aðalsafni, Foldasafni, Gerðubergi og Sólheimasafni
Borgarbókasafn býður börnum á aldrinum 8–12 ára að taka þátt í ritsmiðju vikuna 14.–18. júní og 21. – 25. júní (eingöngu í Ársafni). Dagskrá er á hverjum degi, tvær og hálfa klukkustund í senn. Í ritsmiðjunni er áhersla lögð á skapandi skrif barnanna sjálfra og þeim til aðstoðar verða rithöfundar og starfsmenn safnanna. Meira um ritsmiðjurnar
21.-25.
Ritsmiðja í Ársafni
28.
Sumarlokun í Ársafni og Sólheimasafni. Lokað verður til 18. júlí. Kynntu þér sumarafgreiðslutímann
Til baka