Vefsíða Borgarbókasafns

Ritraðir

Fíasól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur

Fíasól er fjörug stelpa sem fer sínar eigin leiðir. Bækurnar um hana hafa notið mikilla vinsælda hjá íslenskum börnum og hafa þær t.d. þrisvar sinnum hlotið bókaverðlaun barnanna sem valin eru af 6-12 ára börnum.

Eva og Adam eftir Måns Gahrton

Bækurnar um Evu og Adam hafa notið gífurlegra vinsælda. Eva og Adam eru vinir í byrjun en byrja síðan á föstu og það gengur ekki áfallalaust fyrir sig.

Artemis Fowl eftir Eoin Colfer

Artemis Fowl er ekki nema tólf ára en afburðagreindur og bráðsnjall glæpamaður.

Á háskaslóðum eftir Lloyd Alexander

Bækurnar segja frá ævintýrum Tarans og félögum hans. Taran er aðstoðarsvínahirðir en dreymir um að vera mikil og fræg hetja.

Dóttir ávítarans eftir Eva Kaaberbøl

Dóttir ávítarans fjallar um Dínu, ellefu ára telpu, sem hefur erft auga og hæfileika móður sinnar. Með augn­ráðinu einu saman fær hún jafnvel harð­svírustu afbrotamenn til að horfast í augu við misgjörðir sínar.

Eftir Spiderwicksögurnar eftir Tony DiTerlizzi

Sjálfstætt framhald hinna vinsælu Spiderwicksagna. Tveir krakkar komast að því að Leiðarvísir Artúrs Spiderwick er ekki neitt ævintýri heldur raunverulegur leiðarvísir inn í hulda heima.

Einhyrningurinn minn eftir Lindu Chapman

Draumur Láru um að eignast hest rætist þegar foreldrar hennar flytjast í sveit. Hún fær líka bók um venjulegan hest sem breytist í mjallhvítan einhyrning og þá flýgur henni í hug: Gæti Skyggnir minn kannski líka...?

Elías eftir Auði Haralds

Bækurnar um Elías eru óborganlega skemmtilegar. Elías er fyndið ólíkindatól og fjölskylda hans ekki síður.

Gyllti áttavitinn eftir Philip Pullman

Gyllti áttavitinn er fyrsta bók margverðlaunaðs þríleiks Philips Pullman um stúlkuna Lýru sem elst upp í fullkomnu öryggi innan um fræðimennina í Jórdanarskóla á Englandi.

Harry Potter

Er einhver sem ekki þekkir Harry Potter? Ef svo er þá hlýtur hinn sami að hafa búið í helli fjarri mannabyggðum í mörg ár :o)

Ljónadrenguirnn eftir Zizou Corder (dulnefni fyrir Louisa Young og Isabel Adomakoh Young)

Sagan Ljónadrengurinn segir af óvenjulegum dreng sem getur talað tungumál kattardýra og lendir í ógleymanlegum ævintýrum á ferðalagi með farandsirkus.

Óvættaför eftir Adam Blade

Undarlegir hlutir gerast í þorpinu þar sem Tom býr. Fyrst var ráðist á hestana, síðan þornaði áin og nú er búið að brenna uppskeruna. Allir eru flemtri slegnir nema Tom…

Stravaganza eftir Mary Hoffman

Hér segir frá Lucien í London á 21. öldinni. Hann er krabbameinsveikur og rúmliggjandi. En á nóttunni flyst hann til Belezza-borgar á Talíu á 16. öld.

Spiderwick eftir Tony DiTerlizzi

Þrír venjulegir krakkar, Jared, Simon og Mallory Grace, hafa farið inn í annan heim, án þess að yfirgefa þennan.

Sögur úr myrkum heimi eftir Michelle Paver

Eftir lát föður síns reikar Torak um skóginn. Hann kynnist Úlfi og kemst að því að með einhverjum undarlegum hætti getur hann skilið úlfamál og tekur hann því Úlf með sér.

Úr bálki hrakfalla eftir Lemony Snicket

Baudelaire systkinin eiga ekki sjö dagana sæla eftir að foreldrar þeirra farast í stórbruna.

Þríleikurinn um Edda Dickens eftir Philip ARdagh

Þegar báðir foreldrar Edda fá sjúkdóm sem gerir þá gula, skapvonda og illa lyktandi er ákveðið að senda Edda til brjáluðu ættingja hans á Heljarþröm.



Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�