Heilahristingur - heimanámsaðstoð á bókasafninu
Heilahristingur fer í sumarfrí frá og með 21. maí. Síðasti heilahristingurinn er fimmtudaginn 20. maí! Svo tökum við þráðinn aftur upp í haust. Vertu velkomin/n þá!
Langar þig að:
-fá aðstoð við heimanám?
-fá stuðning við að halda áfram í námi?
-deila hugmyndum þínum með öðrum og taka þátt í skapandi unglingastarfi eftir skóla?
-efla sjálfstraustið?
-fá aðgang að skemmtilegum bókum, bíómyndum og tónlist?
Hvenær, hvar og hverjir?
Á Borgarbókasafninu í Gerðubergi er boðið upp á ókeypis heimanámsaðstoð fyrir nemendur í 5.-10. bekk í grunnskólum í Breiðholti og á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14.30 - 16.00.
Sjálfboðaliðar taka á móti þeim nemendum sem hafa áhuga á að nýta sér aðstoðina á Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Heimanámsaðstoðin er kölluð Heilahristingur og er áhersla lögð á að virkja nemendurna í námi og að hafa það skemmtilegt saman.
Heilahristingur eða heimanámsaðstoð er eitt af mörgum fjölmenningarlegum verkefnum Borgarbókasafns. Verkefnið felst í að aðstoða börn og unglinga við heimanámið og er að danskri fyrirmynd. Heimanámsaðstoðin er unnin í samvinnu við Reykjavikurdeild Rauða krossins. Verkefnið fékk styrk frá Þróunarsjóði innflytjendamála og frá Menntaráði og nýtur auk þess faglegs stuðnings frá Etadeild Delta Kappa Gamma.
VILTU GERAST SJÁLFBOÐALIÐI? Hafðu samband við Þór Gíslason, verkefnastjóra hjá Reykjavíkurdeild Rauða krossins, s. 8972040 - thorgisla@redcross.is.
Kynntu þér hina dönsku fyrirmynd!
Til baka