Um Heilahristing



Heilahristingur er heimanámsaðstoð við nemendur í grunnskólum. Tilgangur verkefnisins er að styðja og styrka nemendur í námi sínu og kynna þeim þá þjónustu sem bókasafnið býður upp á í tengslum við nám, áhugamál, tómstundir og annað.

Heimanámsaðstoðin er krydduð með ýmsum skemmtilegum uppákomum, s.s. dansi, kvikmyndasýningum og tónlist. Megináhersla er lögð á að bjóða gott umhverfi sem styður við skapandi barna – og unglingastarf, vekja nemendurna til umhugsunar um framtíðarmöguleika sína, styrkja sjálfsmynd þeirra og gefa þeim möguleika á að hitta vini sína og eignast nýja. Heilahristingur er tilraunaverkefni og ef vel tekst til verður boðið upp á heimanámsaðstoð í fleiri hverfum.

Heilahristingur fer fram í þremur söfnum Borgarbókasafns. Sjálfboðaliðar leiðbeina nemendunum og eru meðal þeirra framhaldsskólanemendur, háskóla- og kennaranemar sem og kennarar á eftirlaunum.

Verkefnið er samstarfsverkefni Borgarbókasafns og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands og er unnið að fyrirmynd dansks verkefnis sem heitir "Projekt 100 lektiecaféer". Bókasafnið er hentugt fyrir starfsemi af þessu tagi þar sem það er hlutlaus, afslappaður og óformlegur staður þar sem allir eru velkomnir. Segja má í raun að bókasafnið sé eins konar gátt inn í samfélagið. Auk þess nýtist safnkostur bókasafnsins vel í námi og leggur starfsfólk sig fram við að aðstoða nemendur og sjálfboðaliða í leit að gögnum og upplýsingum. Reykjavíkurdeild Rauða krossins hefur margra ára reynslu af heimanámsaðstoð og málörvun fyrir yngri bekki grunnskólanna og þekkingu á starfi með sjálfboðaliðum. 

Nánari upplýsingar veita:

Kristín R. Vilhjálmsdóttir,verkefnastjóri Borgarbókasafns,
s. 6181420 - kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is

Karen Theódórsdóttir, verkefnastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða krossins
s. 5450415 -karen@redkross.is
 






Borgarbókasafn Reykjavíkur

RKÍ Reykjavíkurdeild

Velferðarráðuneyti

 


english spanish
Polski
  Thai