Vefsíða Borgarbókasafns

Ljóðaslamm 2009


Ljóðaslamm - plakat
Borgarbókasafn Reykjavíkur hélt keppni í ljóðaslammi annað árið í röð á Safnanótt, föstudaginn 13. febrúar 2009. Þema kvöldsins var hrollur og er óhætt að segja að þátttakendur hafi brugðið upp fjölbreyttum myndum af því viðfangsefni og var metnaður þeirra mikill.

Fimmtán ungmenni á aldrinum 15 til 21 árs tóku þátt að þessu sinni og var það samdóma álit dómnefndar að keppnin hafi verið mjög jöfn og afar erfitt að velja á milli atriða.

Sigurvegarar kvöldsins voru Ásta Fanney Sigurðardóttir og Ástríður Tómasdótti (sjá myndband) en framlag þeirra bar heitið Eine kleine hrollvekja. Þótti dómnefnd þema keppninnar skila sér mjög vel í atriði þeirra, textinn var sterkur og flutningur góður í einfaldri en áhrifaríkri sviðsetningu.

Í öðru sæti voru Bryndis Ósk Ingvarsdóttir, Júlíana Kristín Jóhannsdóttir og Thelma Björnsdóttir (sjá myndband) með Nartað í hjarta sem var bæði tilþrifamikið og hrollvekjandi.

Í þriðja sæti var Kristján Klausen (sjá myndband) sem flutti Ég hélt, eigið lag og ljóð um hrollvekjandi fréttir í daglegu lífi okkar allra.

Aðrir þátttakendur voru:
Theódóra Fanndal Torfadóttir
. Hljóðfæraleikarar með henni voru Helga Friðriksdóttir á rör, Dagrún Aðalsteinsdóttir á áslátturshljóðfæri, Björg Skarphéðinsdóttir á rafmagnsgítar og Hrafnhildur Jónsdóttir á tölvu. Þær fluttu ljóð Theodóru Ég kynni til sögunnar hið svokallaða líf.

Mona Sif Hadaya. Hún flutti eigið ljóð Myrkur.

Víngnir pÁ. Mér þykir leiðinlegt að tilkynna það en Víngnir mun ekki komast í kvöld vegna fjárnáms, ekki fjarnáms. Í staðinn mun forsætisráðherrann flytja ávarp til þjóðarinnar.

Björk Þorgrímsdóttir. Smámál, unnið í samvinnu við Berglindi Ýr Sveinbjörnsdóttur. Vaka Agnarsdóttir var Björk til aðstoðar

Kynnir kvöldsins var Ragnheiður Eiríksdóttir.

Í dómnefnd voru Bóas Hallgrímsson tónlistarmaður, Bragi Ólafsson rithöfundur, Björn Unnar Valsson bókmenntafræðingur, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur.

Myndir: Tumi Árnason og Þorsteinn Cameron ©

Verðlaunahafar
Verðlaunahafar

Ásta
Ásta Fanney Sigurðardóttir

Ástríður Tómasdóttir
Ástríður Tómasdóttir


Nartað í hjartað
Nartað í hjartað (Bryndis Ósk Ingvarsdóttir, Júlíana Kristín Jóhannsdóttir og Thelma Björnsdóttir )

Kristján Klausen
Kristján Klausen

Björk Vaka
Björk Þorgrímsdóttir og Vaka Agnarsdóttir 

Móna Sif
Móna Sif Haday

Vignir Pá
Víngnir pÁ

Theódóra
Theódóra Fanndal Torfadóttir og co.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�