Vefsíða Borgarbókasafns

Ljóðaslamm 2008


Ljóðaslamm 2008
Fyrsta ljóðaslamm Borgarbókasafns var haldið í Grófarhúsi á opnunarkvöldi Vetrarhátíðar, fimmtudaginn 7. febrúar 2008. Alls tóku 17 ungmenni á aldrinum 14 - 22 ára þátt. og atriðin voru 10. Dagskráin var afar fjölbreytt og valið sem dómnefndin stóð frammi fyrir allt annað en auðvelt.

Sigurvegarar:

Halldóra Ársælsdóttir (sjá myndband) var í fyrsta sæti. Hún söng eigið ljóð sem heitir Verbréfadrengurinn við lagið Litli trommuleikarinn og spilaði hún sjálf undir á gítar. Það fjallar um raunir titilpersónunnar á nokkuð kómískan hátt og skapaðist skemmtileg spenna milli ljóðsins og lagsins sem Halldóra valdi að syngja það við. Til gamans má geta að atriðið hennar varð frægt í kjölfar „hrunsins“ og gekk manna á milli á netinu.

Í öðru sæti voru þeir Gísli Hvanndal og Gunnar Jónsson (sjá myndband) með kraftmikið atriði sem þeir kölluðu Ljóð-hljóð en það voru tvö ljóð sem Gísli slammaði við hljóðverk sem Gunnar stjórnaði.

Í þriðja sæti var svo Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir (sjá myndband) en hún flutti ljóð sitt Hrap á afar leikrænan og lifandi hátt.

Auk verðlaunahafanna tóku eftitaldir listamenn þátt í dagskránni:


Saga Eir Svanbergsdóttir: Spennuljóð. Saga söng ljóðið við eigið lag.
Brynjar Birgisson: Miklu meira en neistar. Brynjar slammaði ljóðið.
Víngnir pÁ: Fullur af spennu. Víngnir flutti nokkur ljóð við tónlist dj flugvél og geimskip og sýndi eigin teikningar og ljósmyndir á tjaldi.
Valdimar G. Guðmundsson sem Kórinn: Taktu mig aftur í sátt. Raftónlist og söngur.
Temmilega töff (Anna Margrét Ásbjarnardóttir, Guðrún Selma Sigurjónsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir, Ragnheiður Erlingsdóttir og Steinunn Jónsdóttir): Týnd. Dans- og ljóðverk.
Fjóla Kim og Steinunn Selma Jónsdóttir: Spennan í loftinu. Fjóla flutti ljóðið sitt við tónlist eftir Vivaldi og Steinunn dansaði.
Ingi Vífill Guðmundsson og Thelma Marín Jónsdóttir: Sannleikurinn stakur. Leikþáttur í bundnu máli.

Í dómnefnd sátu þau Bóas Hallgrímsson tónlistarmaður, Bragi Ólafsson rithöfundur, Freyr Eyjólfsson útvarps- og tónlistarmaður, María Pálsdóttir leikkona og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur

Kynnir kvöldsins var Elís Pétursson.

Myndir: Magnús Andersen og Tumi Árnason ©

Halldóra Ársælsdóttir
Halldóra Ársælsdóttir

Gísli og Gunnar Gísli og Gunnar
Gísli Hvanndal og Gunnar Jónsson

Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir

Brynjar Birgisson
Brynjar Birgisson

Ingi Vífill og Telma
Ingi Vífill Guðmundsson og Thelma Marín Jónsdóttir

Saga Eir
Saga Eir Svanbergsdóttir

Hópurinn Temmilega töff
Temmilega töff (Anna Margrét Ásbjarnardóttir, Guðrún Selma Sigurjónsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir, Ragnheiður Erlingsdóttir og Steinunn Jónsdóttir)

Valdimar P. Guðmundsson
Valdimar G. Guðmundsson

Vignir Pá
Vignir Pá


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�