Ljóðaslamm 2010

Borgarbókasafn Reykjavíkur hélt keppni í ljóðaslammi þriðja árið í röð á Safnanótt föstudaginn 12. febrúar. Þema kvöldsins var væmni og brugðu keppendur ólíku ljósi á þetta vandmeðfarna viðfangsefni, þótt ástin hafi óneitanlega sett sterkan svip á kvöldið. Sautján ungmenni á aldrinum 15 til 22 ára tóku þátt að þessu sinni með átta atriði, sumir stigu einir á stokk en aðrir í hópum.
Sigurvegari kvöldsins var tríóið
, en meðlimir þess eru menntskælingarnir Atli Jasonarson, Geir Garðarsson og Sölmundur Ísak Steinarsson. Atli fór með ástarljóðið „Hlölli”, Geir spilaði undir á banjó og Sölmundur á munnhörpu og trommu. Þótt dómnefnd texti og flutningur falla mjög vel saman og leikandi húmorinn í ljóðinu skila sér sérlega vel.
Í öðru sæti var
með „Íslenska lagið”, sem einnig fjallaði um ást en nú til barns, einlægur texti um væntumþykju við grípandi undirleik. Hljómsveitina skipa Greipur Garðarsson (kassagítar og söngur), Gunnar Atli Davíðsson (cajon), Jón Pálsson (xylófónn), Jóhannes Bjarki Bjarkason (ukulele og söngur) og Viktor Freyr Hjörleifsson (bakraddir). Þeir eru allir nemendur í unglingadeild Víkurskóla í Grafarvogi.
Í þriðja sæti var aldursforsetinn,
, en hann flutti ljóðabálk með myndasýningu og er óhætt að segja að hans framlag hafi skorið sig nokkuð úr öðrum atriðum. Hann fjallaði um holdlegar hliðar ástarinnar á meðan áhorfendur fylgdust með ljósmyndasýningu af skemmtanalífi ungs fólks og var þetta samspil mjög vel heppnað.
Aðrir sem tóku þátt voru:
Kristín Viðja Harðardóttir og Sylvía Rún Kristinsdóttir sem fluttu lag Kristínar
Draumur um þig
Jósef Ari Ásgrímsson með ljóð sitt
Næturdrottningin
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir með ljóð sitt
Stjörnubjart kvöld
Bryndís Ýrr Ingvarsdóttir sem flutti ljóð sitt
Sumarást
Björn Bergsson, Kristinn Arnar Sigurðsson og Sindri Jón Grétarsson sem fluttu lagið
Tilhugsun, ljóð Kristins og lag Kristins og Sindra.
Í dómnefnd voru Arngrímur Vídalín skáld, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona, Ragnheiður Eiríksdóttir tónlistarkona, Stefán Máni rithöfundur og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur.
Á meðfylgjandi mynd eru þeir sem urðu í 1. til. 3. sæti ásamt Bóasi Hallgrímssyni, kynni kvöldsins og Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur, formanni dómnefndar. Hárkollan sem einn sigurvegaranna ber (Geir) er gjöf frá sigurvegurum Ljóðaslamms 2009, þeim Ástu Fanney Sigurðardóttur og Ástríði Tómasdóttur. Er það von þeirra að hún verði eins konar "farandbikar" slammsins og lofuðu strákarnir að koma með hana að ári og krýna sigurvegara 2011! :)

Ljósmyndir: Hildur Erna Sigurjónsdóttir ©

Sigurliðið: Tríóið Greit til hliðar plús tveir

Kristín Viðja Harðardóttir og Silvía Rún Kristinsdóttir

Jósef Ari Ásgrímsson

2. sæti: Íslenska hljómsveitin

Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir

Bryndís Ýrr Ingvarsdóttir

Björn Bergsson, Kristinn Arnar Sigurðsson og Sindri Jón Grétarsson

3. sæti: Atli Rúnar Bender

Sigurvegarnir frá 2009: Ásta Fanney Sigurðardóttir og Ástríður Tómasdóttir
Til baka