Vefsíða Borgarbókasafns

Upp á líf og dauða eftir Jónínu Leósdóttur

Eftir hópvinnu heima hjá Hrönn verður eftir blað með dapurlegu ljóði. Hún ákveður að finna höfundinn og koma honum til hjálpar en það er hægara sagt en gert.

Undur og örlög eftir Áslaugu Ýr Hjartardóttur

Sagan fylgir Töru í ævintýralegu ferðalagi frá Facebook og hversdagsleikanum um heima þar sem hún þarf að berjast upp á líf og dauða fyrir framtíð konungdæmis í álfheimum. Ævintýraheima þar sem undur gerast og óvænt örlög mæta persónunum.

H.D. :Alvad

Ziggi er 22 ára líffræðinemi í ástarsorg. Til að hressa hann við gefur mamma hans honum miða á sólarströnd í Tyrklandi.

Hrafnaspark eftir Eystein Björnsson

Hrafn tekur þátt í innbroti í skólann og flikkar svolítið upp á innanhúsarkitektúrinn í stofu kennarafasistans.

Elskar mig – elskar mig ekki - ýmsir höfundar

Sögurnar í þessari bók fjalla allar um að vera ástfanginn, vera elskaður og þora að fylgja hjarta sínu.

Svart & hvítt eftir Jónínu Leósdóttur

Að loknu viðburðaríku sumri í Englandi byrjar Anna í framhaldsskóla í Reykjavík. Ýmislegt brýst um í huga hennar eftir Brighton-dvölina en það er þó ekkert á við ringulreiðina sem ríkir í kolli Kötu vinkonu hennar.

Ljósaskipti eftir Stephenie Meyer

"Ég vissi bara þrennt. Í fyrsta lagi var Edward vampíra. Í öðru lagi þyrsti hann í blóð mitt. Og í þriðja lagi var ég algjörlega yfir mig ástfangin af honum."

Rótleysi, rokk og rómantík eftir Ingibjörgu Reynisdóttur

Um kvöldið þegar Gabríel var inni í herberginu sínu að læra hringdi Teddi. Hann var niðurbrotinn eftir uppákomu helgarinnar.

Rúna - trúnaðarmál eftir Gerði Berndsen

Krissa er þrettán ára og trúir dagbókinni sinni fyrir öllum sínum leyndarmálum. Hún er að byrja í 8.bekk og það skiptir hana miklu máli að falla inn í hópinn.

Maj darling eftir Mats Wahl

Maj var sætasta stelpan í bekknum. Hún fékk alla strákana til að syngja „Oh, my darling"með sérstakri áherslu og innlifun.

Aldrei aftur nörd eftir Thorstein Thomsen

Þegar Álfur mætir aftur í bekkinn sinn eftir nokkurra vikna veikindi er allt breytt. Hann er kominn í botnfallið ásamt Flosa eða Feita eins og hann er kallaður.

Spegill, spegill eftir Cloë Rayban

Justine Duval fer á sýndarveruleikasýningu með hinum trausta og trygga Chuck og festist í víxlveruleika. Allt er þetta frekar annars heims en undarlegast af öllu er að Justine hefur breyst í Jake!

Þegar sálin sér eftir Þóreyju Friðbjörnsdóttur

"Þegar sálin sér" er dulræn saga og kynngi mögnuð. Hún segir frá Auði, stúlkunni sem sá það sem öðrum var hulið.

Emanúel eftir Sören Olsson og Anders Jacobsson

Emanúel er 16 ára og lifir lífinu gegnum myndavélarlinsuna. Hann getur ekki gleymt þessari stelpu. En hvernig á að nálgast slíka fegurðardís ef maður hefur ekkert sjálfstraust?

Mánudagur bara einu sinni í viku eftir Iðunni Steinsdóttur

Stundum er haf og himinn milli lífsins í skólanum og heima fyrir og það eru ekki allir sem geta leitað skjóls heima hjá sér eftir taugatrekkjandi skóladag.

Ljót og Lagleg eftir Scott Westerfeld

Tallý hefur verið ljót í mörg ár en eftir örfáar vikur verður hún sextán ára og lagleg eins og besti vinur hennar Peris.

Ef þú bara vissir eftir Mörtu Maríu Jónasdóttur og Þóru Sigurðardóttur

Líf Klöru Thoroddsen var fullkomið - eða því sem næst!. Fyrir utan speltsjúka og kaupóða, hormónabrenglaða móður, pabba með sjálfskapaðan athyglisbrest og tvo bræður sem minntu frekar á skæruliða en smábörn, var tilveran bara nokkuð góð ... Þar til allt fór í steik!

Kvöldbók Línu eftir Emma Hamberg

Lína skrifar í kvöldbókina það sem enginn má vita. Hún getur auðvitað ekki sagt vinunum sannleikann, það væri glatað, því Lína á mörg leyndarmál og ennþá fleiri vandamál.

Djöflatertan eftir Þóru Sigurðardóttur og Mörtu Maríu Jónasdóttur

Á tuttugasta og áttunda afmælisdegi sínum uppgvötar Sara að draumaprinsinn er ekki allur þar sem hann er séður. En hún vælir ekki, hún grípur til vopna!

Í loftinu lýsa stjörnur eftir Johanna Thydall

Jenna er ekki ánægð með eigin líkama, strákarnir veita henni litla athygli og móðir hennar er alvarlega veik.



Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�