Vefsíða Borgarbókasafns

Umsagnir um menningarmót


Kennari í Austurbæjarskóla:

Það var ákaflega gagnlegt og lærdómsríkt að fá tækifæri til þess að
framkvæma menningarmótið með kennara sem kemur að utan og hefur
lifandi áhuga, reynslu og þekkingu á þessu sviði en það hefur Kristín í
ríku mæli. Nýbúabörnin voru mjög áhugasöm og foreldrarnir einnig, eftir
kynningarfundinn sem haldinn var með þeim. Menningarmótið tókst
framar vonum og voru foreldrar ALLRA barnanna í bekknum mjög ánægðir
með framtakið. Einnig hefur þessi vinna skilað sér í betri bekkjaranda.
Æskilegt væri að kynna menningarmótið vel fyrir öllum foreldrum í almennri
námsefniskynningu sem haldin er í upphafi hvers skólaárs og fara í þessa
vinnu fljótlega í framhaldi af því.

Virðingarfyllst, María Vilborg Ragnarsdóttir


--------------------------------------------------------------------------------


Skólastjóri í Háteigsskóla:

Umsögn um verkefnið sem kallað hefur verið “Fljúgandi teppi”.

Nú á vormisseri 2008 kynnti Kristín R Vilhjálmsdóttir verkefnastjóri á Borgarbókasafni Reykjavíkur verkefnið “Fljúgandi teppi” fyrir stjórnendum og umsjónarmanni móttökudeildar Háteigsskóla. Í þessari umsögn verður skipulagi þessa verkefnis ekki lýst í smáatriðum.

Nemendur í öðrum 5. bekk skólans og nokkrir skólaliðar unnu saman að menningarmótinu í Háteigsskóla. Erlendu starfsmennirnir okkar eru í íslenskunámi í móttökudeild Háteigsskóla og fengu þeir það verkefni að kynna land sitt og nemendur í 5. bekknum kynntu persónulega menningu sína og sumir uppruna sinn. Hópunum var skipt í tvennt, þannig að
annar hlutinn kynnti og hinum hlutanum var skipt upp í hópa sem fengu kynningu. Hóparnir færðust á milli kynningarborða á nokkurra mínútna fresti þannig að hver og einn fékk tækifæri til að eiga samræðu um það sem kynnt var.

Skólastjóri fylgdist með verkefninu. Þetta gekk einstaklega vel og var öllum til mikillar ánægju. Það kom á óvart hvað þetta einfalda verkefni gaf mikið af sér í mannlegum, innihaldsríkum samskiptum, innan bekkjarins og í kynningu erlendu starfsmannanna og nemendanna í 5.bekknum. Við endurtókum verkefnið og fengum erlenda starfsfólkið okkar
til að vera með menningarmót á síðasta starfsmannafundinum og um leið fengum við nokkra starfsmenn aðra til að kynna með sama hætti. Það kom á óvart hvað starfsfólkið í skólanum hafði mikla ánægju af þessu og hvað kennarar skildu vel möguleika þessa einfalda og skemmtilega verkefnis. Margir töluðu um hvernig þeir gætu nýtt sér hugmyndina næsta vetur.

Ég mæli eindregið með að aðrir kynni sér þessa skemmtilegu nálgun og nýti hana í starfi sínu.

Virðingarfyllst,

Ásgeir Beinteinsson
Skólastjóri Háteigsskóla.

--------------------------------------------------------------------------------


Skólaliðar í Háteigsskóla:

Ég hugsa 27. og 28. maí var mjög góður dagur fyrir mér.  Ég horfi á hvað annað fólk gerir og borðar í öðrum löndum.  Írak, Portúgal, Holland, Víetnam. Ég sá hefðbundin föt frá Portúgal og Írak og núna veit ég hvenær fólk notar þessi föt og af hverju. Núna vil ég fara og sjá önnur lönd.  Fyrir mér var fallegur dagur.

- Anna frá Póllandi


Okkur fannst alveg frábært fljúgandi teppi verkefni af því að við getum séð hluti frá öðrum löndum og getum kynnt okkar land, Portúgal.  Við erum stolt að sýna öllum Portúgal sem var svo lítið en gerði svo mikið nokkrum árum seinna.
Takk fyrir að láta okkur gera það.

- Monica og Monica frá Portúgal


Mér fannst mjög gaman að sýna krökkum.  Konan mín eldaði mat fyrir krakka, kok og nami. Takk fyrir, kennarinn er alltaf að hjálpa mér.

- Rabia frá Írak.

--------------------------------------------------------------------------------


Menningarmót í Sólborg – töfrateppið

Það er okkur sönn ánægja að mæla með verkefninu Menningarmót sem Borgarbókasafn Reykjavíkur býður uppá, frábært framtak . Umgjörðin er góð, byrjar á kynningu til lykilstarfsmanna sem síðan miðla efninu til samstarfsfólksins.  Það gerir verkefnið mjög sameiginlegt og allir taka jafnan þátt í því. Það er einnig ánægjulegt að upplifa að Menningarmót er ekki eingöngu fyrir börn af erlendum uppruna, heldur ekki síst fyrir okkur öll því sumir höfðu þá hugmynd um svona mót væru bara fyrir útlendinga. Þetta styrkir okkur sjálf í því að kynna okkar eigin menningu og uppruna.  Hver einstaklingur getur kynnt það sem hann vill úr sínu lífi.   
Við nýttum vel töfrateppið með auganu sem kom bréfum til okkar og sendum við bréf til barna víðs vegar um heiminn.  Það var gaman að sjá þau standa fyrir framan teppið og draga bréfin sín meðfram auganu svona eins og að senda fax. Í Sólborga voru það elstu árgangarnir tveir sem höfðu mikinn ávinning af verkefninu. Þau undirbjuggu sig vel fyrir mótið, útbjuggu sín eigin töfrateppi og settu  hlutina sína á það til sýningar.  Fjölbreytnin var mikil og ánægjulegt að sjá hve börnin voru virk og gerður það verkefnið að sínu eigin. Áhrifin af verkefninu gætir ennþá í leik þeirra og þau raula sönginn „Hæ góðan dag...“   Yngstu börnin höfðu einnig mjög gaman af verkefninu því að fara undir teppið í dansinum og að skoða sig um í salnum þar sem Menningarmótið fór fram.
Foreldrar voru áhugasamir og margir komu á mótið.  Eitt dans og söngatriði kom úr röðum foreldra af erlendum uppruna. 

Bestu kveðjur
Jónína Konráðsdóttir, leikskólastjóri og
Ragnheiður Þóra Kolbeins, aðstoðarleikskólastjóri

 --------------------------------------------------------------------------------


Fellaborg

Fljúgandi teppi - upplifun okkar af verkefninu. 

[...] Börnin voru áhugasöm og full af sjálfstrausti, þeim fannst gaman að sýna sína menningu og fannst gaman að fá tækifæri til að segja frá þeim hlutum sem þeim þykir vænt um. 
Gaman var að því hversu ólíka hluti börnin komu með sum komu með dótið sítt til að sýna aðrir hluti frá heimalandi sínu enn aðrir með verlauna gripi fyrir íþrótt sem þau stunda og sýndu hluti sem fylgja íþróttinni.  Eitt barnið kom með úrklippubók og hluti úr náttúrunni og annað með föt frá víkingatímabilinu.  Það sem okkur fannst skemmtilegast var hvað allir fengu að njóta sín og segja frá því sem þau hafa áhuga á og hvað allir hlutir eru merkilegir í augun barnanna.......    
 
[...] Það var ekki síður mikilvægt fyrir starfsfólk að vinna að þessu verkefni, einn íslenskur starfsmaður kom með upphlut til að sýna, annar með hluti sem tengjast áhugamáli sínu sem er hestamennska, einn pólskur starfsmaður kom með allskonar pólskt góðgæti ásamt pólskum peningum og hlutum , einn japanskur  starfmaður kom með „yukata“ sem er japanskur sumarbúningur og sushi áhöld og starfsmaður frá albaníu kom með bækur og fleira frá sínu heimalandi. Það sem var jákvætt var að allir fengu að njóta sýn og kynna það sem þeim þykir vænt um hvort sem börnin voru af erlendu bergi brotnu eða íslensk.  Gaman var að fá að sjá inn í heim barnanna og hvað er þeim mikilvægt. Verkefnið kom inn á foreldrasamstarf sem er mjög mikilvægt í menningu leikskólans.

Starfsfólk Fellaborgar

 --------------------------------------------------------------------------------

Menningarmót í Fellaskóla

Mjög skemmtilegt að sjá hvað það var ólíkt milli nemendanna hvað þau túlkuðu sem sína menningu. Sumir komu einfaldlega með uppáhalds leikföngin á meðan að önnur söfnuðu saman munum frá sínu upprunalandi í bland við íslenska muni og svo kynntu þau þetta sem menningu sína. Einn nemandi stóð upp á stól og söng lög á pólsku fyrir samnemendur og aðra gesti, hann var mjög spenntur og upptekinn af því að kynna landið sitt fyrir öðrum í gegnum munina sem hann hafði meðferðis. Að auki var hann með nokkra muni sem skipta hann miklu máli, ekki dýrir hlutir heldur hlutir sem hafa einhverja þýðingu fyrir hann. Þessa kynningu undirbjó hann alveg sjálfur án aðstoðar frá starfsfólki skólans eða foreldrum. Aðrir nemendur fengu meiri aðstoð og kom til að mynda einn nemandi með mat frá sínu heimalandi sem foreldrarnir höfðu lagað.
Nú eru liðnar nokkrar vikur frá því að við vorum að vinna þessa vinnu og nemendurnir eru ennþá mjög upptekin af þessari skemmtilegu upplifun. Við kennararnir finnum líka að árekstrar og fýla á milli nemenda er mun minni, og spurning hvort að það tengist því að þau hafi lært að þekkja meira um menningu samnemenda sinna, sína eigin menningu og kynnst þar af leiðandi á annan og nýjan hátt.
Okkur fannst einstaklega skemmtilegt að vinna þetta verkefni. Það passar mjög vel inn í það fjölmenningarlega umhverfi sem við störfum í Fellaskóla. Það var mjög gaman hversu vítt þemað er því þá gátum við ráðið alveg hvaða vinkil við vildum taka fyrir.
Elín Ósk Baldursdóttir, Bjarnheiður Jónsdóttir, kennarar

 --------------------------------------------------------------------------------

Leikskólinn Fálkaborg
„Menningarmótið var mjög skemmtilegur viðburður sem allir kunnu að meta, börn, foreldrar og starfsmenn. Undirbúningurinn var ekki síður gefandi og tókst ótrúlega vel þrátt fyrir mikla undirmönun á eldri deildum þessa viku. Það sem mér finnst ekki síst gaman er að finna mjög aukinn áhuga starfsmannana að vinna menningartengd verkefni með börnunum.“

Elín Erna Steinarsdóttir, leikskólastjóri


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�