Viðburðir í maí
8. maí
Ofurkonan - opnun sýningar á afrakstri myndasögusamkeppni Borgarbókasafns og Myndlistaskólans í Reykjavík.
13. maí
Kurtz &Gut / Knappar og knáar
Borgarbókasafn Reykjavíkur kynnir í samvinnu við Goethe-Institut þýskar teikni- og hreyfimyndir frá árunum 2000-2007. Sýndur verður fjöldi stuttmynda sem gefa innsýn í margbreytileika þýskrar teikni- og hreyfimyndagerðar síðustu ára. Myndirnar verða sýndar dagana 13. - 24. maí í Kamesi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Sýningar hefjast kl. 13 alla daga.
14. maí
Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar
Laugardaginn 14. maí verður haldinn hátíðlegur í 3ja sinn Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar. Dagskráin hefst kl. 13.00 með fjölþjóðlegri göngu frá Hallgrímskirkju niður að Ráðhúsi Reykjavíkur og setur Jón Gnarr borgarstjóri hátíðina. Á fjölmenningardeginum verður nýtt listaverk, sem unnið er af konunum í Söguhring kvenna, afhjúpað. Listaverkið er unnið út frá aboriginal art listgreininni og hefur Lilianne Vorstenbosch, sem hefur verið lengi í Söguhring kvenna, leiðbeint við gerð þess.
15. maí
Bókaverðlaun barnanna verða afhent við hátíðlega athöfn. Lesendur á aldrinum 6-12 ára geta valið bestu barnabækur sem komu út árið 2010. Tvær bækur verða verðlaunaðar, önnur frumsamin og hin þýdd
Fastir viðburðir:
Fjölskyldumorgnar á bókasafninu
Gerðubergssafn: Á þriðjudögum kl. 10.30-11.30
Aðalsafn: Á fimmtudögum kl. 10.30-11.30
Heilahristingur - heimanámsaðstoð á bókasafninu
Gerðubergssafn: Á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14.30-16
Reykjavík les - leshringir Borgarbókasafns
Gamalt og gott. Fyrsta mánudag í hverjum mánuði kl. 17.15 í aðalsafni
Konu- og karlabækur. Fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði kl. 17.15 í Ársafni
Glæpasögur. Fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 17.15 í aðalsafni (komnar í frí til haustsins)
Söguhringur kvenna
Aðalsafn: Fyrsta sunnudag í mánuði
Origami
Origami Íslands, félag áhugafólks um origami, leiðbeinir við gerð origamis, þriðja sunnudag í hverjum mánuði í aðalsafni kl. 15. Sunnudaginn 17. apríl verður kennt að búa til origami úr peningum. Ekkert þátttökugjald og allir velkomnir.
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember
Uppfært 9. maí 2011
gudridur.sigurbjornsdottir@reykajvik.is
Til baka