Viðburðir í júlí
Viðburðir í júlí
Reykjavík Criminally alla fimmtudaga kl. 17
Í júlí og ágúst býður Borgarbókasaf upp á glæpasagnagöngu á ensku alla fimmtudaga kl. 17. Kynntar verða íslenskar bókmenntir fyrir ferðamönnum, og öðrum sem kjósa að fá leiðsögn á ensku, á lifandi og skemmtilegan hátt og er áherslan nú á glæpasögur.
Gangan hefst við aðalsafn Borgarbókasafns í Tryggvagötu 15 kl. 17:00 og tekur rúma klukkustund. Ekkert kostar í gönguna og ekki þarf að bóka þátttöku nema um stóra hópa sé að ræða.
Kvöldgöngur alla fimmtudaga kl. 20
Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á miðbæjargöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum kl. 20. Lagt af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Segðu það með þangi á Reykjavíkurtorgi
Á Reykjavíkurtorgi stendur yfir sýning Salóme Fannberg og er hún til 8. júlí.
Sumarlestur í öllum söfnum Borgarbókasafns
Í sumar verður efnt til sumarlesturs fyrir börn og unglinga í öllum söfnum Borgarbókasafns. Fyrir hverja lesna bók er hægt að bæta geisla með nafni lesandans við sól sem mun skína í söfnunum. Þar með er nafn lesandans komið í pott og í hverri viku gefur FORLAGIÐ þátttakanda bók og í lok sumars fær einn heppinn lesandi sumarsins reiðhjól frá ERNINUM.
Leshringir fyrir 12-14 ára í aðalsafni
Borgarbókasafn, í samvinnu við Bókmenntaborgina, býður upp á leshring fyrir fólk á aldrinum 12-14 ára í aðalsafni, Tryggvagötu 15 og hefst hann í byrjun júlí. Leshringurinn er góður vettvangur fyrir þá sem lesa lítið en langar að hella sér í lesturinn semog fyrir hina sem lesa meira og vilja deila lestrarreynslu sinni með öðrum.
Fastir viðburðir á söfnunum
Í hverri viku
Fjölskyldumorgnar (september - maí)
Fjölskyldumorgnar eru ætlaðir fjölskyldum ungra barna. Þeir eru á miðvikudögum í Gerðubergssafni og á fimmtudögum í aðalsafni og hefjast kl. 10.30. Af og til er boðið upp á dagskrá sem tengist uppeldi og umönnun barna. Kaffi og te á boðstólum fyrir fullorðna og bækur og leikföng fyrir börnin.
Heilahristingur (september - maí)
Heilahristingur er heimanámsaðstoð fyrir börn og unglinga. Heilahristingurinn fer fram í aðalsafni, Gerðubergssafni og Kringlusafni. á þriðjudögum og fimmtudögum.
Kvöldgöngur (júni-ágúst)
Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á miðbæjargöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum kl. 20. Lagt af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Lesum blöðin saman (september - maí)
Lesum blöðin saman“ er fjölmenningarleg þjónusta sem boðið er upp á í aðalsafni Borgarbókasafns og felst í því að starfsmaður bókasafnsins aðstoðar þátttakendur við að fara yfir helstu fréttir og bendir á það sem er í brennidepli hverju sinni. Við lesum blöðin saman alla fimmtudaga kl. 17.30.
Prjónakaffi í Ársafni (það er prjónað árið um kring í Ársafni)
Það er prjónað af miklu kappi í Ársafni alla þriðjudaga kl. 13-15. Boðið er upp á kaffi og eru allir velkomnir með handavinnuna.
Sunnudagar eru barnadagar (september - maí)
Það er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sunnudögum í aðalsafni og Gerðubergssafni yfir vetrartímann. Sögustundir, föndur, kvikmyndasýningar, leikrit og margt, margt fleira. Dagskráin hefst kl. 14 í Gerðubergssafni og kl. 15 í aðalsafni.
Í hverjum mánuði
Leshringir
Leshringir Borgarbókasafns verða fjórir í vetur. Tveir eru í aðalsafni, glæpasöguhringur og "gamalt og gott", í Ársafni er lesnar "konu- og karlabækur" og í Foldasafni eru teknar fyrir alls konar bækur.
Prjónakaffi í Sólheimasafni (september - maí)
Boðið er upp á prjónakaffi fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 17-19. Allir velkomnir með handavinnuna, heitt á könnunni. Prjónakaffi haust 2011: 1. september, 6. október, 3. nóvember og 1. desember.
Söguhringur kvenna (september - maí)
Söguhringur kvenna er eitt fjölmenningarlegum verkefnum Borgarbókasafns en eins og önnur verkefni er söguhringurin opinn öllum. Söguhringurinn hittist fyrsta sunnudag í mánuði á 6. hæð í aðalsafni kl. 14.
Origami
Origami Ísland, sem er félag áhugafólks um origami, leiðbeinir við gerð origamis þriðja sunnudag í mánuði í aðalsafni. Origami er skemmtilegt og þroskandi tómstundagaman og er víða notað til kennslu.
Á hverju ári
Ljóðaslamm
Á safnanótt í febrúar stendur Borgarbókasafn fyrir ljóðaslammi þar sem ungt fólk kemur saman og etur kappi í orðlist. Frábær skemmtun fyrir alla.
Myndasögusamkeppni
Borgarbókasafnið stendur fyrir myndasögusamkeppni fyrir ungt fólk í apríl, maí ár hvert.
Árið um kring
Á Reykjavíkurtorgi aðalsafns eru sýningar allt árið um kring. Þar sýna listamenn sem eiga verk í Artótekinu auk fjölmargra annarra listmanna, nemenda, ljósmyndara og fleiri.
Kamesið
Kamesið er fjölnota rými á 5. hæð aðalsafns sem stendur almenningi til boða að nýta sér og þar er alltaf eitthvað um að vera allan ársins hring. Rýmið hentar undir viðburði af ýmsu tagi, s.s. sýningar á kvikmyndum og vídeóverkum, upplesturs, söguflutnings, kynninga, uppistands, leiksýninga, tónleika og fleiri uppákoma sem ekki þarfnast stórs rýmis.
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember
Uppfært 20.02.2012
gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is
Til baka