Viðburðir í ágúst
20. ágúst
Menningarnótt á Borgarbókasafni - Gakktu í heimsbæinn
Fastir viðburðir yfir sumartímann
Prjónakaffi í Ársafni
Það er prjónað af miklu kappi í Ársafni alla þriðjudaga kl. 13-15. Boðið eru upp á kaffi og eru allir velkomnir með handavinnuna.
Sumarlestur
Sumarlesturinn er lestrarhvetjandi verkefni og er hann ætlaður börnum upp að 12 ára aldri. Lesum og lesum í allt sumar :o).
Leshringir í Borgarbókasafni
Hefurðu gaman af því að lesa og viltu taka þátt í leshring? Leshringir Borgarbókasafns hittast einu sinni í mánuði og í sumar eru tveir leshringir í gangi. Annar er í aðalsafni og hittist hann fyrsta mánudag í mánuði kl. 17.15. Í honum eru lesnar "gamlar og góðar". Hinn leshringurinn er í Ársafni og þar eru "konu- og karlabækur" teknar fyrir fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 17.15.
Ef þú lumar á hugmynd að nýjum leshring hafðu endilega samband: gudridur.sigurbjornsdottir@reykajvik.is
Kvöldgöngur úr Kvosinni
Borgarbókasafn, Listasafn, Ljósmyndsafn og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á fjölbreyttar og skemmtilegar gönguferðir með leiðsögn á fimmtudagskvöldum kl. 20. Lagt er af stað frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Bókmenntagöngur á ensku
Borgarbókasafnið stendur fyrir miðborgargöngum á ensku alla fimmtudaga í júlí og ágúst. Markmiðið er að kynna íslenskar bókmenntir fyrir ferðamönnum og öðrum útlendingum á lifandi og skemmtilegan hátt og um leið brot úr sögu Reykjavikur.
__________________________
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember
Uppfært 07.06.2011
gudridur.sigurbjornsdottir@reykajvik.is
Til baka