Viðburðir í október
5. okóber
Baby's in black
Opnun sýningar í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi á teikningum úr myndasögunni Baby’s in Black eftir þýska myndasöguhöfundinn Arne Bellstorf
Ný stjórnarskrá?
Borgarbókasafn boðar til fjögurra opinna funda þar sem fulltrúar úr Stjórnlagaráði og undirbúningsnefnd Stjórnlagaráðs kynna frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Frumvarpið var afhent Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis 29. júlí síðastliðinn. Á síðu stjórnlagaráðs má nálgast frumvarpið í heild sinni.
Fundirnir verða í aðalsafni, Tryggvagötu 15 og standa frá kl. 17.15-18.15
10. október kl. 17.15-18.15
Almenn kynning á stjórnlagaráði og frumvarpinu
Salvör Nordal formaður ráðsins og Njörður P.
Njarðvík sem sat í undirbúningsnefnd
17. október kl. kl. 17.15-18.15
Nefnd A: Grunngildi, ríkisborgararéttur og
þjóðtunga, uppbygging og kaflaskipan stjórnarskrárinnar,
náttúruauðlindir og umhverfismál og
mannréttindi, þ.á m. þjóðkirkjan.
Fulltrúar: Katrín Oddsdóttir og Illugi Jökulsson
24. október kl. kl. 17.15-18.15
Nefnd B: Undirstöður íslenskrar stjórnskipunar,
hlutverk og staða forseta Íslands, hlutverk og störf
Alþingis, ríkisstjórn, störf forseta og ráðherra og
verkefni framkvæmdarvaldsins, staða sveitarfélaga.
Fulltrúar: Þórhildur Þorleifsdóttir og Eiríkur Bergmann Eiríksson
31. október kl. kl. 17.15-18.15
Nefnd C: Stjórnlagaráð, lýðræðisleg þátttaka
almennings (þ.á m. stjórnarskrárbreytingar),
sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum
handhöfum ríkisvalds, alþingiskosningar,
kjördæmaskipan og alþingismenn, samningar við
önnur ríki og utanríkismál.
Fulltrúar: Íris Lind Sæmundsdóttir og Ómar Ragnarsson
Fastir viðburðir á söfnunum
Fjölskyldumorgnar á bókasafninu
Gerðubergssafn: Á þriðjudögum kl. 10.30-11.30
Aðalsafn: Á fimmtudögum kl. 10.30-11.30
Heilahristingur - heimanámsaðstoð á bókasafninu
Heimanámsaðstoðin fer nú fram í aðalsafni, Gerðubergssafni og Kringlusafni. Sjá´nánar á www.heilaristingur.is
Leshringir
Leshringir Borgarbókasafns verða fjórir talsins í vetur, tveir eru starfræktir í aðalsafni, einn í Ársfani og brátt mun sá fjórði bætast við í Foldasafni.
Lesum blöðin saman
Lesum blöðin saman“ er fjölmenningarleg þjónusta sem boðið er upp á í aðalsafni Borgarbókasafns og felst í því að starfsmaður bókasafnsins aðstoðar þátttakendur við að fara yfir helstu fréttir og bendir á það sem er í brennidepli hverju sinni. Við lesum blöðin saman alla fimmtudaga kl. 17.30.
Origami
Origami Ísland, sem er félag áhugafólks um origami, leiðbeinir við gerð origamis þriðja sunnudag í mánuði í aðalsafni. Origami er skemmtilegt og þroskandi tómstundagaman og er víða notað til kennslu.
Prjónakaffi í Ársafni
Það er prjónað af miklu kappi í Ársafni alla þriðjudaga kl. 13-15. Boðið er upp á kaffi og eru allir velkomnir með handavinnuna.
Prjónakaffi í Sólheimasafni
Boðið er upp á prjónakaffi fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 17-19. Allir velkomnir með handavinnuna, heitt á könnunni. Prjónakaffi haust 2011: 1. september, 6. október, 3. nóvember og 1. desember.
Sunnudagar eru barnadagar
Gerðubergssafn: Alla sunnudaga kl. 14
Aðalsafn: Alla sunnudaga kl. 15
Söguhringur kvenna
Aðalsafn: Fyrsta sunnudag í mánuði
Sjá einnig Saman á safninu
__________________________
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember
Uppfært 19.01.2011
gudridur.sigurbjornsdottir@reykajvik.is
Til baka