Vefsíða Borgarbókasafns

Viðburðir í desember


Á döfinni í desember

3. Friður og fjölmenning í Viðey
Skapandi smiðja og notaleg samverustund fyrir börn og fullorðna verður haldin í Viðeyjarstofu laugardaginn 3. desember frá kl. 14:00.

4. Föndrað fyrir jólin í aðalsafni
Kristín Arngrímsdóttir, listakona og starfsmaður safnsins, leiðbeinir við föndurgerðina af sinni alkunnu snilld.

4. Hvað á verkið að heita. Úrslit úr nafnasamkeppni kynnt
Síðastliðið sumar efndu Borgarbókasafn og Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur til samkeppni um nafn á listaverk sem unnið var af Söguhring kvenna undir stjórn Lilianne Vorstenbosch, myndlistakennara. Verkið var afhjúpað við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu á Fjölmenningardegi borgarinnar, laugardaginn 14. maí.

4.-14. Bréf til bjargar lífi
Dagana 4.-14. desember stendur yfir bréfamaraþon Amnesty International í aðalsafni, Foldasafni og Gerðubergssafni.

Fastir viðburðir á söfnunum

Í hverri viku

Fjölskyldumorgnar (september - maí)
Fjölskyldumorgnar eru ætlaðir fjölskyldum ungra barna. Þeir eru á miðvikudögum í Gerðubergssafni og á fimmtudögum í aðalsafni og hefjast kl. 10.30. Af og til er boðið upp á dagskrá sem tengist uppeldi og umönnun barna. Kaffi og te á boðstólum fyrir fullorðna og bækur og leikföng fyrir börnin.

Heilahristingur (september - maí)
Heilahristingur er heimanámsaðstoð fyrir börn og unglinga. Heilahristingurinn fer fram í aðalsafni, Gerðubergssafni og Kringlusafni. á þriðjudögum og fimmtudögum.

Kvöldgöngur úr Kvosinni (júni-ágúst)
Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á miðbæjargöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum kl. 20. Lagt af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.

Lesum blöðin saman (september - maí)
Lesum blöðin saman“ er fjölmenningarleg þjónusta sem boðið er upp á í aðalsafni Borgarbókasafns og felst í því að starfsmaður bókasafnsins aðstoðar þátttakendur við að fara yfir helstu fréttir og bendir á það sem er í brennidepli hverju sinni. Við lesum blöðin saman alla fimmtudaga kl. 17.30.

Prjónakaffi í Ársafni (það er prjónað árið um kring í Ársafni)
Það er prjónað af miklu kappi í Ársafni alla þriðjudaga kl. 13-15. Boðið er upp á kaffi og eru allir velkomnir með handavinnuna.

Sunnudagar eru barnadagar (september - maí)
Það er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sunnudögum í aðalsafni og Gerðubergssafni yfir vetrartímann. Sögustundir, föndur, kvikmyndasýningar, leikrit og margt, margt fleira. Dagskráin hefst kl. 14 í Gerðubergssafni og kl. 15 í aðalsafni.

Í hverjum mánuði

Leshringir
Leshringir Borgarbókasafns verða fjórir í vetur. Tveir eru í aðalsafni, glæpasöguhringur og "gamalt og gott", í Ársafni er lesnar "konu- og karlabækur" og í Foldasafni eru teknar fyrir alls konar bækur.

Prjónakaffi í Sólheimasafni (september - maí)
Boðið er upp á prjónakaffi fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 17-19. Allir velkomnir með handavinnuna, heitt á könnunni. Prjónakaffi haust 2011: 1. september, 6. október, 3. nóvember og 1. desember.

Söguhringur kvenna (september - maí)
Söguhringur kvenna er eitt fjölmenningarlegum verkefnum Borgarbókasafns en eins og önnur verkefni er söguhringurin opinn öllum. Söguhringurinn hittist fyrsta sunnudag í mánuði á 6. hæð í aðalsafni kl. 14.

Origami
Origami Ísland, sem er félag áhugafólks um origami, leiðbeinir við gerð origamis þriðja sunnudag í mánuði í aðalsafni. Origami er skemmtilegt og þroskandi tómstundagaman og er víða notað til kennslu.

Á hverju ári

Ljóðaslamm
Á safnanótt í febrúar stendur Borgarbókasafn fyrir ljóðaslammi þar sem ungt fólk kemur saman og etur kappi í orðlist. Frábær skemmtun fyrir alla.

Myndasögusamkeppni
Borgarbókasafnið stendur fyrir myndasögusamkeppni fyrir ungt fólk í apríl, maí ár hvert.

Árið um kring

Á Reykjavíkurtorgi aðalsafns eru sýningar allt árið um kring. Þar sýna listamenn sem eiga verk í Artótekinu auk fjölmargra annarra listmanna, nemenda, ljósmyndara og fleiri.

Kamesið
Kamesið er fjölnota rými á 5. hæð aðalsafns sem stendur almenningi til boða að nýta sér og þar er alltaf eitthvað um að vera allan ársins hring. Rýmið hentar undir viðburði af ýmsu tagi, s.s. sýningar á kvikmyndum og vídeóverkum, upplesturs, söguflutnings, kynninga, uppistands, leiksýninga, tónleika og fleiri uppákoma sem ekki þarfnast stórs rýmis.

Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember

Uppfært 22. 11. 2011
gudridur.sigurbjornsdottir@reykajvik.is


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�