Um safnið

Gerðubergssafn er í sama húsi og Menningarmiðstöðin Gerðuberg. Safnið opnaði vorið 1986. Húsakynnin eru björt og rúmgóð og hefur verið breytt í samræmi við breytingar á starfssemi. Í safninu er góð lestraraðstaða og þægileg aðstaða til að tylla sér niður og lesa nýjustu tímaritin eða dagblöð.
Barnadeild safnsins er rúmgóð og hlýleg. Hægt er að panta sögustundir og safnkynningar fyrir börn. Í safninu eru barnabækur á fjölmörgum erlendum tungumálum.
Í unglingadeildinni er fjölbreyttur safnkostur fyrir ungt fólk, bæði bækur og tímarit.
Safnkostur í Gerðubergi er um 70.000 eintök og efni mjög fjölbreytt. Fyrir utan bækur og tímarit á ýmsum málum, má nefna hljóðbækur, dvd-myndir, geisladiska, margmiðlunarefni og tungumálanámskeið.
Gestir safnsins geta fengið aðgang að tölvum, gegn vægu gjaldi, til að komast á Netið og í ritvinnslu.
Hvaða strætisvagnar stoppa nálægt safninu?
Til baka