Bókasafnsdagurinn er nú haldinn í annað sinn og er hann þriðjudaginn 17. apríl. Yfirskrift dagsins þetta árið er „Lestur er bestur“.
Í söfnum Borgarbókasafns verður mikið um að vera og aðaláherslan að sjálfsögðu sett á lestur.
Þeir sem ekki eiga bókasafnsskírteini á Borgarbókasafni geta fengið eins mánaðar kynningarskírteini á öllum söfnunum endurgjaldslaust þennan dag.
Lestur er bestur Myndbönd munu rúlla á skjá þar sem fjölmargir segja frá sínum uppáhaldsbókum og lestrarupplifun. Á annarri hæð verður útstilling á umræddum bókum. Yndislestur starfsmanna Starfsmenn munu stilla út sínum uppáhaldsbókum á annarri hæð.
Heildardagskrá Borgarbókasafns