Vefsíða Borgarbókasafns

Þýsk kvikmyndahátíð


Borgarbókasafn og Goethe Institut efna til þýskrar kvikmyndahátíðar dagana 17. apríl til 2. maí, í Kamesinu, á 5. hæð í aðalsafni Tryggvagötu 15. Sýndar verða 14 myndir sem gefa innsýn í fjölbreytileika þýskra barna- og fjölskyldumynda frá miðri síðustu öld og fram til okkar daga. Sú elsta er frá árinu 1950 og sú yngsta frá því 2006. Viðfangsefni myndanna eru af ýmsum toga, ævintýri, fantasíur, teiknimyndir, leiknar myndir, galdrar, draugar, fantar, fúlmenni,friðarboðskapur, skólalífið, gelgjan, fyrsta ástin, foreldravandamálið, það að vera öðruvísi og margt fleira áhugavert. Hluti myndanna er byggður á ævintýrum, meðal annars er hér eitt Grimmsævintýri, aðrar myndir eru byggðar á barnabókum eins og til dæmis Emil og leynilögreglustrákunum eftir Erich Kästner og enn aðrar eru frumsamdar frá grunni. Allar myndirnar eru sýndar með þýsku tali og enskum skýringartextum. Bæklingur til útprentunar


Das kleine GespenstDas kleine Gespenst. (Leikstjóri Curt Linda. Þýskaland, 1992. Litur, 78 mín. Byggð á sögu eftir Otfried Preußler.) Teiknimynd um lítinn draug, uglu og mús.
The Little Ghost.The little white ghost tells the wise owl of his desire to see the world just once in daylight.
Sýnd: Laugardaginn 17. apríl og sunnudaginn 2. maí, kl. 13 og 15.

Die Konferenz der Tiere.Die Konferenz der Tiere. (Leikstjóri Curt Linda. Vestur - Þýskaland, 1969. Litur, 88 mín. Byggð á sögu eftir Erich Kästner.) Teiknimynd um óvenjuleg dýr sem hefur verið bjargað úr fjölleikahúsi og taka til sinna ráða til að fá að lifa í friði.
The Conference of the Animals. A number of animals who have been rescued from a circus wish to live in peace.
Sýnd: Sunnudaginn 18. apríl, kl. 13 og 15.

Die kleine ZauberflöteDie kleine Zauberflöte. (Leikstjóri Curt Linda. Þýskaland, 1997. Litur, 63 mín.) Teiknimynd byggð á sömu sögu og ópera Mozarts. Verðlaun: Würzburg International Filmweekend 1998. Besta barnamyndin.) Tamino prins villist í veiðitúr inn í ríki næturdrottningarinnar og hittir þar fyrir góðhjartaðan fuglafangara að nafni Papageno. Þeir fá svo það verkefni að frelsa Paminu dóttur næturdrottningarinnar úr klóm hins illa Sarastro.
The Little Magic Flute. While hunting, Prince Tamino chances into the realm of the tyrannical Queen of the Night. There he meets up with the bird-catcher Papageno. Together they have to save Pamina, daughter of the Queen of the Night, from the clutches of Sarastro.
Sýnd: Mánudaginn 19. apríl, kl. 13, 15 og 17.

Sergeant PepperSergeant Pepper. (Leikstjóri Sandra Nettelbeck. Þýskaland, 2004. Litur, 98 mín.) Hundurinn Sergeant Pepper erfir húsbónda sínn en efirlifandi börn hans ákveða að fá því hnekkt og komast yfir auðæfin. Sex ára strákur og besti vinur Peppers er þó á öðru máli.
Sergeant Pepper. The story of the fairy-tale friendship between a sensitive six year old boy and an orphaned dog named Sergeant Pepper who band together to fight for the inheritance left to Pepper by his multi-millionaire master.
Sýnd: Þriðjudaginn 20. apríl, kl. 13, 15 og 17.

Das doppelte LottchenDas doppelte Lottchen. (Leikstjóri Josef von Báky. Vestur-Þýskaland, 1950. Svart hvít, 105 mín. Byggð á sögu eftir Erich Kästner. Bókin kom út á íslensku 1956 undir heitinu Lísa eða Lotta : hvor var hvor? Disneymyndin The Parent Trap frá 1961 er gerð eftir sömu sögu og var vinsæl hér á landi á sínum tíma. Verðlaun: Deutscher Filmpreis 1951.) Tvíburasystur aldar upp hvor hjá sínu foreldrinu reyna að sameina fjölskylduna með því að víxla heimilum.
Two Times Lotte.Two ten year old girls who look uncannily alike meet by accident and realize they must be twins.
Sýnd: Miðvikudaginn 21. apríl, kl. 13, 15 og 17.

Emil und die DetektiveEmil und die Detektive. (Leikstjóri Franziska Buch. Þýskaland, 2001. Litur, 98 mín. Byggð á sögu eftir Erich Kästner. Verðlaun: Bavarian Film Awards 2002, besta handritið og Children Jury Golden Sparrow, í flokknum besta mynd í fullri lengd 2001.) Emil, 11 ára, fer í lest til Berlínar en er rændur á leiðinni. Stelpan Pony er foringi krakkagengis sem hjálpar honum að hafa uppá ræningjanum.
Emil and The Detectives. On his way to Berlin, twelve-year-old Emil is robbed by a petty thief. Upon arrival in Berlin, he follows the thief and soon finds support from a gang of kids led by young Pony.
Sýnd: Fimmtudaginn 22. apríl. Sumardaginn fyrsta, kl. 13 og 15.


Das kalte HerzDas kalte Herz. (Leikstjóri Paul Verhoven. Austur - Þýsklaland, 1950. Litur, 99 mín. Byggð á ævintýri eftir Wilhelm Hauff. Verðlaun: Karlovy Vary International Film Festival 1951. Besta mynd í lit.) Til að öðlast ríkidæmi og geta gifst ástinni sinni lætur fátækur kolagerðarmaður hjarta sitt í skiptum fyrir hjarta gert úr ís.
Heart of Stone. A poor charcoal burner gives up his heart in exchange for making his wishes come true.
Sýnd: Föstudaginn 23. apríl, kl. 13, 15 og 17.

Die Geschichte vom kleinen Muck
Die Geschichte vom kleinen Muck
. (Leikstjóri Wolfgang Staudte. Austur -Þýskaland, 1953. Litur, 99 mín. Byggð á ævintýri eftir Wilhelm Hauff.) Gamall maður í austurlenskri borg segir nokkrum götustrákum frá því þegar hann komst yfir töfraskó og vönd.
The Story of Little Mook. An old man tells children the story of his life: In his quest to find great fortune he encountered the marvelous world of the Orient, where magical things happen.
Sýnd: Laugardaginn 24. apríl, kl. 13 og 15.



Das fliegende KlassenzimmerDas fliegende Klassenzimmer. (Leikstjóri Tomy Wigand. Þýskaland, 2002. Litur, 110 mín. Byggð á skáldsögu eftir Erich Kästner. Margverðlaunuð mynd. Fékk m.a. gullverðlaun German Film Awards 2003 sem besta barnamyndin
og Children Jury Golden Sparrow sem besta mynd í fullri lengd sama ár.) Jónatan byrjar í nýjum heimavistarskóla og eignast nýja vini. Strákana langar að setja upp leikrit en í ljós koma ýmsar ófyrirséðar flækjur.
The Flying Classroom. Jonathan (12) is a new boy at the St. Thomas boarding school in Leipzig. The other boys quickly become his friends. They find a manuscript for a play and decide to perform it, but their choirmaster forbids it.
Sýnd: Sunnudaginn 25. apríl, kl. 13 og 15.

Sechs kommen durch die WeltSechs kommen durch die Welt. (Leikstjóri Rainer Simon. Austur Þýskaland, 1972. Litur, 66 mín. Byggð á Grimmsævintýri.) Stríðselskur kóngur launar hermönnum sínum lélega fyrir dygga þjónustu. Nokkrir þeirra sameinast gegn honum til að ná fram maklegum málagjöldum og réttlátri dreifingu á fjársjóðum hans til fátækra og kúgaðra þegna.
Six Round the World. A war-loving king reimburses his loyal soldiers poorly for their services. A few of them band together against him and hand all of his treasures out to the poor and oppressed.
Sýnd: Mánudaginn 26. apríl, kl. 13, 15 og 17.

MondscheinkinderMondscheinkinder. (Leikstjóri Manuela Stacke. Þýskaland, 2006. Litur, 87 mín. Verðlaun: Max Ophüls Festival áhorfendaverðlaun, 2006). Systir stráks með sólarofnæmi hjálpar honum að kljást við lífið og e.t.v. dauðann með því að sannfæra hann um að hann sé í raun geimfari frá öðrum hnetti.
The Children of the Moon. Lisa’s younger brother is suffering from the incurable "Disease of the Moon" and has to stay inside the house. Lisa has invented a fantasy game, and in their imagination Paul is a spaceship captain.
Sýnd: Þriðjudaginn 27. apríl, kl. 13, 15 og 17.

Die Blindgänger (x 2)Die Blindgänger (x 2). (Leikstjóri Bernd Sahling. Þýskaland, 2003. Litur, 87 mín. Margverðlaunuð mynd, þar á meðal besta myndin í tveimur flokkum á Berlin International Film Festival, 2004, Adult's Jury Award á Chicago International Children's Film Festival, 2004 og gullverðlaun á German Film Awards 2004 sem Outstanding Children's Film.) Tvær hæfileikaríkar vinkonur í blindraskóla vilja komast í vinsæla hljómsveit. Mun blindan koma í veg fyrir að þær slái í gegn? Hér er fjallað um vináttu, fyrstu ástina, skólalífið og blinda táninga án þess að verið sé að velta sér uppúr klisjum.
Blindflyers. Marie and Inga, both 13, do not differ from other teenagers except in one way: they are blind. They love music and when they hear that a school band about to take part in a TV contest is recruiting extras they go to the audition.
Sýnd: Miðvikudaginn 28. apríl, kl. 13, 15 og 17.

Flussfahrt mit HuhnFlussfahrt mit Huhn. (Leikstjóri Arend Aghte. Vestur - Þýskaland, 1984. Litur, 100 mín.) Í stað þess að fara í sveit til afa inni í miðju landi halda frændsystkin í félagi við tvo stráka og kjúklinginn Gonzo í viðburðaríka leit að fljótaleið til Norðursjávar.
Hen in a Boat. Four children and a chicken take off to discover the legendary north-east passage. They are pursued by a caring, adventurous grandfather across water, land and sky.
Sýnd: Fimmtudaginn 29. apríl, kl. 13, 15 og 17.

CrazyCrazy. (Leikstjóri Hans-Christian Schmied. Þýskaland, 2000. Litur, 95 mín. Byggð á skáldsögu eftir Benjamin Lebert sem líka er meðhöfundur handrits. Margverðlaunuð mynd, þar á meðal Bavarian Film Awards Best Young Actor, 2001 og silfurverðlaun á German Film Awards, 2001 sem Outstanding Feature Film.) Sextán ára strákur, lítillega fatlaður, kemur nýr inn í heimavistarskólann og gerir með því lokatilraun til að ná einkunnum sem duga eiga inn í framhaldskóla. Tekst honum að útskrifast og krækja í draumadísina eða skiptir kannski annað líka máli?
Crazy. A sixteen-year-old with a slight physical disability is enrolled in boarding school by his parents – due, among other things, to his inadequate school performance.
Sýnd: Föstudaginn 30. apríl, kl. 13, 15 og 17.

Senda á Facebook
Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�