Almennings og skólabókasöfn landsins veita verðlaunin hvert ár fyrir tvær bækur, aðra frumsamda og hina erlenda. 6-12 ára börn velja bækurnar og fer valið fram á heimasíðu Borgarbókasafns og í grunnskólum og bókasöfnum um allt land á vormánuðum. Verðlaunin eru veitt á sumardaginn fyrsta.
Borgarbókasafnið átti frumkvæði að þessum verðlaunum og í byrjun voru það aðeins almennings- og skólabókasöfn á höfuðborgarsvæðinu sem tóku þátt. Nú eru söfn um allt land með og bíða börn, bókaverðir og kennarar spennt eftir þessum viðburði.
2010Núll núll 9 eftir Þorgrím ÞráinssonStórskemmtilega stelpubókin eftir Andrea J. Buchanan í þýðingu Höllu Sverrisdóttur 2009Fíasól er flottust eftir Kristínu Helgu GunnarsdótturSkúli skelfir og villta, tryllta tímavélin eftir Fransesca Simon í þýðingu Guðna Kolbeinssonar 2008Loforðið eftir Hrund ÞórsdótturHigh school musical: skólasöngleikurinn eftir N. B. Grace, Snorri Hergill Kristjánsson þýddi
2007Fíasól á flandri eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur Eragon: öldungurinn eftir Christopher Paolini, Guðni Kolbeinsson þýddi
2006Fíasól í Hosiló eftir Kristínu Helgu GunnarsdótturHarry Potter og blendingsprinsinn eftir J.K. Rowling, Helga Haraldsdóttir þýddi 2005Öðruvísi fjölskylda eftir Guðrúnu Helgadóttur100% Nylon eftir Mörtu María Jónsdóttur Kafteinn Ofurbrók og brjálaða brókarskassið eftir Dav Pilkey, Bjarni Frímann Karlsson þýddi 2004Strandanornir eftir Kristínu Helgu GunnarsdótturHarry Potter og Fönixreglan eftir J.K. Rowling, Helga Haraldsdóttir þýddi 2003Marta smarta eftir Gerði Kristnýju Kafteinn Ofurbrók og innrás ótrúlega asnalegu eldhúskerlinganna utan úr geimnum (og uppreisn afturgengnu nördanna úr mötuneytinu) eftir Dav Pilkey, Bjarni Fr. Karlsson þýddi 2002Í mánaljósi, ævintýri Silfurbergþríburanna eftir Kristínu Helgu GunnarsdótturHarry Potter og eldbikarinn eftir J.K. Rowling, Helga Haraldsdóttir þýddi
2001Fíasól er flottust eftir Kristínu Helgu GunnarsdótturSkúli skelfir og villta, tryllta tímavélin eftir Fransesca Simon í þýðingu Guðna Kolbeinssonar