Borgarbókasafn er áskrifandi af hlusta.is en þar er hægt að hlaða niður fjölbreyttu efni fyrir börn og fullorðna. Skáldsögur, íslenskar sem og þýddar, fornsögur, þjóðsögur og ævintýri, spennusögur og þjóðlegur fróðleikur er meðal efnis sem finna má á hlusta.is.
Borgarbókasafn hefur nú þegar hlaðið fjölda sagna niður á mp3 diska og eru þeir lánaðir út eins og aðrar hljóðbækur. Safngestir, sem eiga skírteini í gildi, geta einnig beðið um ákveðið efni af hlusta.is, finni þeir það ekki á safninu og beðið um að að því verði hlaðið beint inn á „pödduna", mp3 spilarann eða á disk sem gestir koma með sjálfir. Enn sem komið er, er einungis boðið upp á þessa þjónustu í aðalsafni og Ársafni.
Finnst þér eitthvað vanta af efni hlusta.is í hljóðbókasafn Borgarbókasafns? Sendu okkur tölvupóst: arsafn@borgarbokasafn.is eða fylltu hér upplýsingar út, þar sem fram kemur titill á sögunni / efninu af hlusta.is, nafn og kennitala, netfang eða símanúmer og í hvaða safni þú myndir vilja nálgast diskinn. Við sendum þér svo tölvupóst eða hringjum í þig þegar hann er tilbúinn.