Æringjasögur maí og júní 2010
Grænaborg
Geimferðin
Það var einu sinni lítil mús sem fór í geimflaug útí geim. Geimflaugin lenti á Mars og þar sá músin skrítnar geimverur. Þar var henni boðið í geimveruveislu og borðaði hún geimverukökur og annað geimverugóðgæti. Geimverurnar bjuggu í helli en svo fór músin út og sá geimverukind sem var allt öðruvísi en venjuleg kind en hún var með rjóðar kinnar. Geimverurnar áttu líka geimverukettling en músin og geimverukettlingurinn urðu vinir. Hann sá líka apa en hann var alveg venjulegur. Síðan fór hann aftur heim til jarðarinnar og á leiðinni sá hann sólina og stjörnurnar og allskonar plánetur. Svo kom hann heim og fékk sér ber og ost að borða og fór svo að sofa.
Sólstafir
Stelpan og huldufólkið
Einu sinni var stelpa sem var ein heima með pabba sínum því mamma hennar var á spítala. Pabbi hennar þurfti að fara út á sjó og stelpan bað um að fá að fara með en pabbi hennar vildi það ekki, svo hún varð alein eftir heima. Um nóttina kom draugur og gleypti hana og svo kúkaði hann henni aftur í heilu lagi. Þá fór stelpan í sturtu því hún var öll útí draugakúk og svo fékk hún sér vatn að drekka. Síðan sá hún huldukonu og hún knúsaði hana og fór svo með henni inní steininn. Það var álfakastali og þar var veisla. Stelpan fékk bæði pizzu, nammi, ís og kakó. Stúlkan varð gömul inní kastalanum og þurfti að endingu að fara á sama spítala og mamma hennar hafði farið á. Þá var mamma hennar dáin og orðin að engli og hún strauk stelpunni um vangann og kyssti hana. Þá kom huldukonan aftur til stelpunnar sem var orðin gömul og galdraði hana unga aftur. Síðan fór stelpan aftur heim til pabba síns. Stelpan klifraði aftur uppá fjallið en þá kom huldumaður sem vildi sprengja fjallið í loft upp en áður en það gerðist renndi stelpan sér niður fjallið og huldumaðurinn henti púða niður svo stelpan lenti mjúklega. Svo sprengdi hann fjallið í loft upp því þetta var eldfjall.
Stelpan fór svo aftur heim til pabba síns og spurði hvort hún mætti fá nammi og pabbi hennar leyfði henni það. Og þá var komin nótt og hún fór að sofa.
Mýri
Bína og trúðurinn
Bína var heima hjá sér þegar trúður kom og bankaði á dyrnar.
Þá sagði Bína ,,Kom inn“
,,Viltu koma í boltaslag?“ sagði trúðurinn.
„Nei“ sagði Bína „en viltu koma inn í herbergi að skoða nýja dótið mitt?“
,,Nei“ sagði Trúðurinn, „ég vil frekar fara í boltaslag.“
,,Þá skulum við bara gera hvorutveggja“, sagði Bína „en þú verður að kenna mér að kasta boltum fyrst.“ ,,Já ég lofa því“, sagði trúðurinn.
Svo fóru þau inn í herbergið hennar Bínu.
,,Hvaða Barbídót er þetta eiginlega“, sagði Trúðurinn.
Svo fóru þau inn í eldhús að elda mat og baka. Á eftir fóru þau út í skóg að týna ber og þegar þau komu til baka og settu körfuna á borðið sáu þau litla mús. Músin sagði, ,,Hvaða ófreskjur eru þetta?“ en svo hljóp hún út í skóg.
Svo fór trúðurinn heim til sín og Bína bjó til meiri mat og bakaði berjaköku.
Regnbogaland Foldaskóla
Sögurnar í sögubílnum
Einu sinni voru börn sem fóru inní sögubílinn og bíllinn flaug upp í himininn og alla leið til Akureyrar. Hann lenti rétt hjá sumarbústað og það var tröll í sumarbústaðnum. Þetta var hún Gilitrutt. Gilitrutt sagði; ,,Hvað er fyrir utan sumarbústaðinn minn?“ Svo reyndi hún að taka krakkana í sögubílnum. Hún setti þau í poka og fór með þau inn í sumarbústaðinn og henti þeim í pott og setti lokið á. En það var einn sem hafði sloppið, Einar hafði falið sig svo hún fann hann ekki. Nú læddist Einar inní eldhús og tók lokið af pottinum og hleypti krökkunum út. Fyrst var Egill klesstur við lokið en sem betur fer losnaði hann. Krakkarnir fundu nú nokkra poka í sumarbústaðnum sem voru fullir af útlenskum börnum og þau fundu skæri og hleyptu þeim út. Síðan bundu þau Gilitrutt við ljósastaur. Nú flugu þau á Æringja út um allan heim og fóru með útlensku börnin heim til sín. Síðan fóru þau aftur heim til Reykjavíkur.
Sólborg
Kötturinn sem bjargaði börnunum
Einu sinni var lítill köttur sem bjó með mömmu sinni. Einn daginn labbaði hann í gegnum ævintýrahurð og hitti krókódíl sem sagði; ,,Farðu inn um næsta ævintýragang.“ Kötturinn gerði það og þar sá hann apa. Apinn sagði; ,,Farðu inn í apaland.“ Kötturinn dansaði inn í apalandið en þar inni var tönn sem talaði við fólk. Tönnin sagði ,,góðan daginn börnin mín. Nú eruð þið að fara í skóla.“
Þá kom Tröll með álfa í maganum og tröllið át líka öll börnin. Þá fór kisan í gegn um krókódílalandið. Hún setti loppuna sína upp í munninn á tröllinu. og þá komu öll börnin og álfarnir upp úr maganum á tröllinu. En tröllið sogaðist ofaní jörðina. Þá fór kötturinn aftur heim til mömmu sinnar.
Hamraborg
Stríðnispúkarnir
Einu sinni voru strákur og stelpa og þau voru óvinir og alltaf að rífast. Stelpan tók prik og lamdi strákinn en hann kom þá með hamar og nelgi skóinn hennar fastan. En síðan urðu þau vinir og hann losaði skóna og stelpan losaði líka prikið sem var fasti í höfðinu á stráknum. Síðan fóru þau að leika sér. Nú var að koma nótt svo þau fóru inn að borða en þau fengu að gista saman. En þegar þau voru að borða hellti strákurinn matnum hennar en mamman kom sem betur fer með nýjan mat en þegar þau fóru að sofa hellti stelpan úr heilu vatnsglasi í rúmið hans. Þegar þau vöknuðu fóru þau út að leika og stelpan lamdi hann með steini og hann lamdi hana líka en að lokum klesstu þau bæði á múrvegg og þá fóru þau bæði að gráta og urðu vinir og fóru inn að leika sér í playmó. Síðan fór stelpan í klippingu. Þegar stelpan kom úr klippingunni fóru þau í feluleik. En þegar stelpan fannst varð hún tapsár en þá fóru þau bara og léku sér með brúður.
Laufásborg
Drekinn Dúlli
Einu sinni var dreki sem hét Dúlli úti að leika sér og hitti þá annan dreka. Drekinn Dúlli var með töfraól sem gerði hann ódrepandi og gat gert hann ósýnilegan. Og svo kom grís sem var líka ódrepandi og gat gert sig ósýnilegan. Allt í einu kom hauskúpa og fór að skrifa. Hinn drekinn sagði að hann væri rjúpa og fannst öllum það mjög skrítið. Svo kom Kári kálfur og foreldrar hans Lína mu mu og Kalli naut. Þau fóru að borða gras en þá kom önnur kúafjölskylda og sagði að það væri fullt af úlfum og refum á túninu. Þá hlupu kýrnar af túninu. Drekarnir komu og spúðu eldi á úlfana og refina en þá fóru úlfarnir og refirnir að rokka og dansa með drekunum og öllum hinum dýrunum.
Til baka