Á fyrstu æviárunum fer máltakan fram. Rannsóknir sýna að ef lesið er fyrir börn frá unga aldri eykur það velgengni þeirra í námi síðar á ævinni. Fyrstu kennslu í lestri fær barnið gjarnan í notalegri lestrarstund með foreldrum sínum.
Lestur fyrir börn:- eflir málþroska- eykur orðaforða- örvar ímyndunaraflið- vekur forvitni- eykur lestraráhuga- er fræðandi- eykur einbeitingu
Ræðið við barnið um bókina, sögupersónur og myndskreytingar.
Reynið að vekja eftirvæntingu og forvitni og spyrjið út frá efni og myndum.
Hvetjið barnið til að taka þátt í lestrinum t.d. þegar sama orð eða texti er endurtekinn.
Kennið barninu vísur og þulur.
Hvetjið barnið til að lesa og skrifa í þykjustinni með sínum eigin orðum og eigin skrift.