Sumarlesturinn á Foldasafni gekk vonum framar í ár en um helmingi meiri þátttaka var í ár en í fyrra. Við á Foldasafni vorum mjög ánægð að sjá hvað það komu margir krakkar að ná sér í lesefni í sumar. Af því tilefni slógum við upp veglegri uppskeruhátíð þar sem 10 heppnir krakkar fengu verðlaun við hátíðlega athöfn. Hér má sjá nokkrar myndir frá uppskeruhátíðinni.