Prjónakaffið er á þriðjudögum milli kl. 13-15. Úrval af handavinnublöðum og bókum.
Árbæjarblaðið fjallar um Árdokkurnar í 4.tb. 2012 bls. 15. http://issuu.com/skrautas/docs/ab-2012-04?mode=a_p
Lífsglaður hópur 12-15 kvenna hittist á þriðjudögum í Ársafni með prjónana sína. Þar er glatt á hjalla og mörg mál til umræðu. Linda Blöndal frá Síðdegisútvarpi Rásar 2 heimsótti þær á dögunum og birtist viðtalið hér.
http://www.ruv.is/sarpurinn/siddeg
Það er glatt á hjalla þegar prjónaklúbburinn Árdokkurnar mæta í hús.
Þann 15. maí síðastliðinn fóru Árdokkurnar í sína fyrstu vorferð. Ferðinni var heitið að Reykholti í Biskupstungum þar sem farið var í prjónaverslunina Bjarkarhól, borðað á Kaffi Kletti, gróðurhús heimsótt og fræðst um blómaræktun. Næst var farið á Flúðir; stoppað á kaffihúsinu Kaffi Grund og dúkkusafnið á staðnum skoðað. Á heimleiðinni var kertagerðin í Brautarholti heimsótt.