Í söfnum Borgarbókasafns er vettvangur til að koma á framfæri góðum og áhugaverðum bókum sem þú vilt leyfa öðrum að njóta í bókahringrásinni græn bók - góð bók. Reglurnar eru einfaldar, allir mega taka sér eina bók af borðinu og skila henni svo á næsta grænubókarborð Borgarbókasafns. Markmið verkefnisins er að auðvelda aðgengi að bókum, hvetja til lesturs, ýta undir endurvinnslu og endurnýtingu og hafa það skemmtilegt.