Vefsíða Borgarbókasafns

Fréttir úr Kringlusafni

17.05.2013

Afgreiðslutími um hvítasunnuna

Lokað

Opið er í aðalsafni og Kringlusafni laugardaginn 18. maí kl. 13-17 en lokað í öðrum söfnum. Öll söfnin verða lokuð á hvítasunnudag og annan í hvítasunnu.




17.05.2013

Ritsmiðjur fyrir 8-12 ára - skráning er hafin!

Ritsmiðja í aðalsafni

Borgarbókasafn býður börnum á aldrinum 8–12 ára að taka þátt í ritsmiðju í byrjun júní. Dagskrá er á hverjum degi í tvær klukkustundir í senn og er áhersla lögð á skapandi skrif barnanna sjálfra. Meira ...




12.05.2013

Rýmin & skáldin I-VI

Merki Listahátíðar

Listahátíð, Útvarpsleikhúsið og Borgarbókasafnið mætast í dagskránni Rýmin & skáldin I-VI.




10.05.2013

Borgarbókasafn á lifandi tungumálatorgi í kaffihúsi Ráðhússins


Café Lingua á Fjölmenningardegi í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 11. maí: Borgarbókasafn tekur virkan þátt í Fjölmenningardegi Reykvíkinga eins og undanfarin ár og býður borgarbúa velkomna á lifandi tungumálatorg í kaffihúsinu í Ráðhúsinu frá kl. 14. "Te og kaffi" bjóða upp á te og kaffi.




10.05.2013

Lokað í öllum söfnum á uppstigningardag

Lokað

Lokað verður í öllum söfnum Borgarbókasafns á uppstigningardag.




06.05.2013

Undirbúningur garðsins fyrir sumarið.

Garðverkin

Á safninu er mikið af bókum um garðrækt, blóm og plöntur. Nú er einmitt tíminn til að hefja undirbúning. Huga þarf að trjánum og viðhaldi gróðursins. Einnig er skemmtilegt að rækta eigið grænmeti og kál. Margir nota sumarið til að rækta margs konar kryddjurtir. Jurtirnar er svo hægt að þurrka og nota yfir veturinn í matargerð og jafn vel sem te.




30.04.2013

Skapandi skrif örnámskeið laugardaginn 27. apríl í Kringlusafni


Krakkar sem tóku þátt í örnámskeiði í skapandi skrifum í Kringlusafni laugardaginn 27.apríl. Sköpunarskólinn og Borgarbókasafn buðu upp á ókeypis námskeið. Krakkarnir og leiðbeinandi voru ánægð og hress með daginn en unnið var með hugmyndir að sögum, kvikmyndum og einnig búnir til brandarar.




27.04.2013

Afmæliskaffi, Pollapönk, Sirkus, bingó og ritsmiðja

Afmælisblöðrur

Laugardaginn 27. apríl er lokadagur vikulangrar afmælisveislu í Borgarbókasafni. Boðið verður upp á kaffi og afmælistertu í Foldasafni en auk þess er mikið um dýrðir og skemmtanir í öðrum söfnum.




24.04.2013

Minnsta tröll í heimi kom í Kringlusafn

Minnsta tröll í heimi

Miðvikudaginn 24. apríl kom leikhúsið Sögusvuntan og Hallveig Thorlacius í heimsókn í Kringlusafn. Sögusvuntan sýndi leikverkið Minnsta tröll í heimi. Börn frá leikskólunum Álftaborg , Stakkaborg og Jörfa skemmtu sér konunglega. Þeim fannst svo gaman að þau vildu fá meira þegar sýningu lauk. Við þökkum Hallveigu og börnunum kærlega fyrir ánægjulega stund saman á safninu.




22.04.2013

Afmæliskaffi og Ljóð unga fólksins í Kringlusafni þriðjudaginn 23. apríl

Afmælisblöðrur

Afmælisveisla Borgarbókasafns heldur áfram og þriðjudaginn 23. apríl verður boðið upp á kaffi og tertu í Kringlusafni allan daginn eða á meðan kakan endist.






Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�