Charles Dickens er meðal fremstu skálda Bretlands frá Viktoríutímabilinu. Hann var mjög vinsæll höfundur meðan hann lifði og í raun alþýðuskáld. Verk Dickens eru ennþá mikið lesin og sögur hans hafa verið kvikmyndaðar. Hann var gagnrýnin á eigin samfélag og gerði óspart grín að fyrirmönnum þjóðfélagsins. Meðal þekktra skáldverka sem festir þekkja má nefna:Oliver Twist, A Christmas Carol, David Copperfield, Bleak House, A Tale of Two Cities, Great Expectations, The Life and Adventures of Nicholas Nickleby og Our Mutual Friend.Borgarbókasafn á flest þessara verka á bók og einnig á safnið nokkrar kvikmyndir byggðar á sögum Dickens svo sem Oliver Twist, Our Mutual Friend og fleira. Til gamans má geta þess að aðalsafn í Tryggvagötu á myndina „Dickens before sound“ á DVD formi, sem eru gamlar þöglar myndir eftir verkum hans.Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér betur líf og starf Charles Dickens er bennt á ýmsar síður á netinu meðal annars Wikipedia sjá