Vefsíða Borgarbókasafns

Æringjasögur í ágúst og september


Kvistaborg
Ísbjörninn sem sprakk
Einu sinni var ísbjörn sem labbaði út í bæ og keypti sér popp, sleikjó og tyggjó og fór svo aftur heim. Svo borðaði hann allt í einu og varð illt í maganum og varð veikur og varð að fara í rúmið. Hann missti líka tönn og fór að gráta. En hann setti tönnina undir koddann sinn og þá fékk hann 100 krónur fyrir tönnina. Svo missti hann aðra tönn og þá fékk hann 1000 krónur fyrir tönnina. Svo missti hann fleiri tennur og fékk milljón krónur.
Nú fékk hann sér aftur að borða og drekka. Hann geymdi peningana í geymslu og svo fékk hann sér brauð að borða. Svo fór hann út og nú missti hann fleiri tennur og svo tunguna og munninn og augun og allt höfuðið og að lokum sprakk hann í loft upp. Aumingja Ísbjörninn.


Austurborg
Strákurinn í snjónum
Einu sinni var strákur sem ætlaði að fara út að leika sér í snjónum. Allt í einu sýndist honum hann sjá snjóskrímsli í glugganum en svo lamdi hann í gluggann og þá var þetta bara snjór. Síðan fór hann út en hann varð svo hræddur að hann hljóp í burtu. Þá sá hann snjóhrúgu og þegar hann gáði hinum megin við hana þá var þar snjóskrímsli sem réðst á hann. En strákurinn hljóp til pabba síns og sagði honum að það væri snjóskrímsli á eftir honum. Þegar pabbi sá að skrímslið hafði augu eins og tígrisdýr varð hann líka hræddur og hljóp líka í burtu. Þeir hlupu þar yfir trjábol og lentu í drullupolli. En þetta var ekkert venjulegur drullupollur heldur álagapyttur og þeir bara hurfu. Þeir lentu inní bókum en fóru svo út úr bókunum í einhverja lyftu. Þegar þeir stigu út úr lyftunni voru þeir staddir í Smáralind. Þeir fóru í klippingu og keyptu sér hest og fóru með hann heim til sín og sýndu mömmu hestinn. Hesturinn vildi ekki eiga heima hjá þeim og hljóp í burtu. En þá keyptu þau sér bara annan hest.


Sæborg
Konan og geitungurinn
Einu sinni var kona út í haga að týna blóm, en þá kom geitungur og stakk hana í rassinn. Þá öskraði konan ótrúlega hátt því þetta var svo sárt.  Það kom sár á rassinn á henni og hún setti plástur á rassinn. Þá kom þarna karl með bíl á hausnum og datt á bossann. Konan fór heim og svo kom vinkona hennar í heimsókn. „Af hverju ertu með plástur á rassinum“ spurði hún. ,,Af því að það var geitungur sem beit mig í rassinn“, sagði konan.


Arnarborg
Rottan, riddarinn og skessan
Einu sinni var kóngur sem bjó í kastala. Eitt sinn sá hann risastóra rottu. Hann gat ekki náð henni en að lokum borðaði rottan kónginn. Þá kom riddari og barðist við rottuna og hann lét rottuna í búr. Síðan lét hann hestinn sinn í hestakerru og svo tók hann bílinn sem kóngurinn átti og keyrði með hestinn heim á leið. Á leiðinni keyrði hann útaf og lenti út í sjó. Hann sökk í sjóinn en þá kom rosasterkur kafari og bjargaði þeim. Hann lyfti bæði bílnum og hestakerrunni upp úr sjónum og riddarinn hélt áfram heim í kastalann sinn.
Þegar hann kom heim beið prinsessan eftir honum og svo kom prinsinn í mat til þeirra. Þau fengu sé kjúkling eða lasanja eða kjötbollur eða lambakjöt, eða hvað það sem var, þá kom risaskessa allt í einu og tók þau.  Það var nótt svo hún labbaði með þau út en þá var sólin kominn upp og smám saman breyttist skessan í stein. Þá fór riddarinn og skar á pokann sem skessan var með og var hann þá fullur af börnum. Þau skriðu út fóru öll heim til sín. Og riddarinn, prinsessan og prinsinn fóru aftur heim í kastalann.
 

Draumaland í Austurbæjarskóla
Kötturinn og músin sem urðu vinir
Einu sinni var lítil mús og svo kom köttur og læddist að henni. Músin séri sér við og sá kisuna en hún vissi ekki að kisan vildi bara vera vinur hennar og varð voða hrædd. En þá sagði kisan að hún vildi vera vinur hennar og þær urðu vinir.  Stundum hljóp kisan með músina á bakinu og einu sinni fundu þær stóran prinsessukastala og prinsessan kom út og sagði: „Oh mig langar í kisu“ en kötturinn hljóp í burtu. Þá kom prinsinn og hljóp á eftir kisunni og reyndi að ná henni. ,,Ég vil klappa þér og ég vil kyssa þig“ hrópaði prinsessan. Prinsinn reyndi að veiða kisu með háf og loksins tókst honum að ná henni. Prinsessan var voða góð við kisu og gaf henni mjólk að drekka. Músin var voða hissa og vildi líka vera vinkona prinsessunnar og þegar prinsessan sá músina elta köttinn tók hún hana upp og klappaði henni og leyfði henni líka að vera hjá sér.
Allt í einu kom annar köttur og vildi éta músina en þá bjargaði prinsessan músinni og sagði ókunnuga kettinum að fara burt. Síðan fóru allir að sofa. Um nóttina kom tígrisdýr og ætlaði að borða þau en sem betur fer braut það töfrakúluna og allir vöknuðu við hávaðann. Þá komu menn sem tóku tígrisdýrið og gáfu kónginum það. Svo fóru allir að sofa aftur og um morguninn fengu kisa og músin sér mjólk að drekka.


Völvuborg
Afmælisveisla drekans! 
Einu sinni var brún afmæliskaka með kertum og spidermanskrauti. Við hliðina á henni var Halló Kittý kaka með fjólubláu prinsessuskrauti. Það var dreki sem átti afmæli og hann var með afmæliskórónu.  Allt í einu fór brúna afmæliskakan að tala og sagði við drekann sem átti afmæli:  ,,Hvert ertu að fara dreki?“
,,Ég er að fara heim að borða köku“ sagði drekinn. ,,Ekki borða mig“ sagði afmæliskakan. En þá fékk drekinn sér eina sneið af kökunni. Svo fór drekinn heim að leika sér.
En afmæliskakann flaug í burtu og breyttist í spiderman og þá sá spiderman úlf og veiddi hann í netið sitt..


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�