Vefsíða Borgarbókasafns

Æringjasögur í október


Hólaborg
Englablómin
Einu sinni var Sóley sem óx útí haga. Þá kom stelpa sem var að tína blóm og hún tíndi líka Sóleyjuna og henti henni og hinum blómunum í ruslið og öll blómin dóu. En blómin lifnuðu öll við og urðu að englablómum. Þá kom englastelpa og sleit englablómin upp en englar deyja ekki svo þau lifðu áfram og ákváðu að renna sér aftur niður á jörðina á regnboganum. Og þau renndu sér niður og lentu í skottinu á kappakstursbíl. Kappakstursbíllinn kom fyrstur í mark en þegar bílstjórinn opnaði skottið sá hann englablómin í skottinu. Hann ákvað að gróðursetja þau aftur í jörðina. Og svo málaði hann þau aftur eins og þau áttu að vera en þau voru öll orðin hvít eins og englarnir á himnum. Hann málaði sumar rósirnar rauðar og sumar bleikar og Gleym-mér-eina litaði hann bláa og Sóleyjuna málaði hann gula. Og þá voru blómin aftur orðin eins og þau áttu að vera!

Vinaminni
Prinsessa í berjamó!
Einu sinni var prinsessa. Einu sinni sagði mamma hennar við hana: ,,Viltu fara út í skóg að tína ber handa mér. Stelpan fór en gleymdi sér og fór að leika sér. Þá kom drottningin aftur og sagði: ,,Hvað ert þú að gera stelpa?“ ,,Ég er að leika mér en svo ætla ég út í skóg að tína ber handa þér“ sagði prinsessan. ,,Allt í lagi stelpan mín þú mátt fara“, sagði drottningin, ,,en mundu að gæta þín á hættulegu dýrunum“. Stelpan lagði af stað en þá kom hrútur, úlfur, ljón og vondur blettatígur. Þá hljóp prinsessan aftur heim til mömmu og sagði við mömmu sína: ,,Það eru mörg vond dýr í skóginum“.  Þá sagði mamma hennar: ,,Taktu með þér grein og lemdu fyrsta dýrið, grettu þig svo framan í það næsta og hentu risasteinum á öll hin.“ Prinsessan gerði það og fór svo að tína ber.

Hálsaborg
Appelsínudrengurinn
Einu sinni var strákur að labba og hitti könguló sem spurði:  ,,Hvert ert þú að fara strákur?“ ,,Ég er að fara að tína appelsínur“ sagði strákurinn. Svo hélt hann áfram. Þá kom mús og spurði: ,,Hvert ert þú að fara?“ ,,Ég er að fara að tína appelsínur“ sagði strákurinn aftur. Svo fór strákurinn uppí tré og tíndi appelsínur. Á leiðinni heim hitti hann úlf sem spurði: ,,Hvert ert þú að fara?“   ,,Ég var bara að tína appelsínur fyrir mömmu mína“. Síðan kom strákurinn að kletti og hitti álf. Skömmu seinna sá hann úlfinn aftur og hann varð svo hræddur að hann hljóp uppá brú. Á miðri brúnni var stórt appelsínutré og hann klifraði uppí tréð og tíndi 100 appelsínur í viðbót. Svo fór hann niður úr trénu og þá kom úlfurinn enn einu sinni en nú var hann ekkert hræddur. Hann fór heim til mömmu sinnar sem sagði:  ,,Til hamingju drengur að vera kominn heim, ég var svo hrædd um þig.“

Bakkaborg
Prinsessufroskurinn
Einu sinni var prinsessa sem kyssti frosk en þá breyttist hún í frosk. Hún var grænn froskur sem gat talað. Hún fór heim og leit í spegilinn. Henni brá svo þegar hún sá að hún varð orðin að froski að hún datt út um gluggann og lenti á jörðinni. Þá kom álfur en hann var hræddur við froskinn og flaug í burtu.
Prinsessufroskurinn og hinn froskurinn fór út að vatninu þar sem þau hittu krókódíl og krókódíllinn var góður við þau. Froskarnir fóru út á bát en krókódíllinn sagði:  ,,Ef einhver vondur kemur og ætlar að éta ykkur kallið þá á mig.“ Froskarnir fóru í land og þá kom maður sem ætlaði að veiða froskana og éta þá. Þá kölluðu þau á krókódílinn og þá varð maðurinn hræddur og hljóp í burtu. Síðan kyssti prinsessufroskurinn hinn froskinn og þá breyttist hún aftur í prinsessu en hinn froskurinn breyttist í venjulegan strák. En þó að hann væri ekki prins þá var þetta svo góður strákur að prinsessan ákvað að giftast honum.

Jöklaborg
Strákarnir þrír
Einu sinni voru þrír strákar. Þeir fundu orma og reyndu að tína þá því þeir ætluðu að fara að veiða. En ormarnir skriðu í burtu. Strákarnir hlupu á eftir þeim og náðu þeim. Þeir tíndu ormana og fóru að veiða. Þeir veiddu marga fiska sem  þeir fóru með heim til sín og sýndu mömmu sinni. Svo fóru þeir að sofa. Þegar strákarnir vöknuðu daginn eftir kom Mjallhvít í heimsókn en hún var vinkona þeirra. Seinna fóru þeir í heimsókn til Mjallhvítar en þá kom Öskubuska þangað líka og þau fóru að leika sér í mömmó. Síðan fóru þeir heim aftur og burstuðu tennurnar og fóru að sofa.

Fálkaborg
Prinsessan og drekinn
Einu sinni var lítil prinsessa sem bjó í litlum kastala. Í fjalli rétt hjá kastalanum var dreki! Þá  kom frost og það var snjór og klaki út um allt. Þá renndi drekinn sér á klakanum og lenti í ísilögðu vatni en þá spúði drekinn óvart eldi og bræddi ísinn og hann datt í vökina. Svo skreið drekinn uppúr vatninu og fór að kastalanum og byrjaði að lemja kastalann að utan. Og síðan klóraði hann líka í veggina með klónum sínum. Síðan náði hann prinsessunni og át hana. Þá kom riddari með sverð og drap drekann og bjargaði prinsessunni. Hann tók síðan dauða drekann og henti honum út í sjó.  Síðan fór riddarinn og kyssti prinsessuna.

Álfadísin og blómálfurinn
Einu sinni var álfadís sem hitti úlf. Hún átti vinkonu sem var líka álfadís og nú kom hún og álfurinn vinur þeirra út í skóginn. Álfadísin okkar sá blóm og blómálf. Hún fór að tína blómin en þá varð blómálfurinn reiður. Þá kom úlfurinn og át blómálfinn og hljóp svo í burtu. Síðan borðaði úlfurinn hundasúru og þá fékk blómálfurinn í maganum líka hundasúru að borða og þannig lifði blómálfurinn góðu lífi í maga úlfsins því hann borðaði allt sem úlfurinn borðaði. Álfadísin fór nú að leita að úlfinum því hún vildi bjarga blómálfinum. Þá hitti hún köflóttan fíl og spurði hann hvort hann hefði séð blómálfinn en fíllinn sagði nei. Síðan fór hún í bílinn og keyrði allan daginn að leita að blómálfinum. Hún spurði alla hvort þau hefðu séð hann en enginn hafði séð hann. Loksins fann hún þó úlfinn en hann var sofandi svo hún skar gat á magann á honum og bjargaði blómálfinum. Hin álfadísin og álfurinn vinur þeirra fóru aðra leið og hittu skrímsli og skrímslið borðaði álfinn. Nú komu álfadísirnar og reyndu að bjarga álfinum sem var í maganum á skrímslinu en þær gátu ekki skorið gat á magann á skrímslinu því þetta var klísturskrímsli. Þær svæfðu skrímslið með töfrum en þegar skrímslið sofnaði gat álfurinn sjálfur farið út úr maganum á klísturskrímslinu. Síðan flýttu álfadísirnar, álfurinn og blómálfurinn sér í burtu.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�