Vefsíða Borgarbókasafns

Sjálfstætt ljóðaslamm 2011


Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur var haldið í aðalsafni á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni var ekki um keppni að ræða, þar sem þrír hópar forfölluðust á síðustu stundu. Eftir stóðu þau Drífa Thoroddsen, sem flutti ljóð sitt Hol, dúettinn Ljóðverk eða þeir Már Másson Maack og Snorri Rafn Hallsson með verkið Sjálfs taði og loks dúettinn Fum, en þeirra ljóðverk bar titilinn Flan. Fum er skipað þeim Brynjari Jóhannssyni og Stefáni Ólafi Ólafssyni og þeir vörpuðu einnig upp ljósmyndum eftir Þórð Arnar. Þema kvöldsins var „sjálfstæði" og túlkuðu skáldin það hvert með sínum hætti, en öll atriðin áttu það sameiginlegt að vera afar vel fram sett og frumleg.

Hér má sjá upptökur frá kvöldinu, fyrst Sjálfs taði með Ljóðverki:

Þá Hol Drífu Thoroddsen:

Og loks Flan Fums:

Auk þeirra komu fram ljóðasveitin Greitt til hliðar plús tveir, sem sigraði Ljóðaslamm 2010, en hana skipa Atli Jasonarson, Geir Garðarsson og Sölmundur Ísak Steinarsson. Þeir fluttu siguratriðið Hlölli frá „væmna" slamminu í fyrra og nýtt verk í ljósi þema kvöldsins, sem þeir kalla Bandaríki.

Einnig voru lesin ljóð eftir Ástríði Tómasdóttur og Birtu Þórhallsdóttur í minningu Ástríðar sem nú er látin, en hún sigraði keppnina árið 2009 ásamt Ástu Fanney Sigurðardóttur.

Freyr Eyjólfsson var kynnir kvöldsins og leyfði hann gestum að heyra ljóð sem hann samdi á unglingsárunum eftir miklar hremmingar á köldu föstudagskvöldi í miðbænum, við seinni tíma lag eftir hann sjálfan.

Það er óhætt að segja að gestir hafi skemmt sér vel, enda dagskráin lífleg og metnaðarfull.

Drífa Thoroddsen

Már Másson Maack og Snorri Rafn Hallsson

Brynjar Jóhannsson og Stefán Ólafur Ólafsson

Greitt til hliðar plús tveir

Freyr Eyjólfsson


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�