Æringjasögur í nóvember
Hlíðaskjól
Leitin að Sólinni
Einu sinni var stelpa sem fór út í skóg að leika sér. Þá kom ókunnugur maður og spurði: ,,Hvar er sólin?“ Stelpan vissi það ekki. Þá kom kona sem hét Sigga Gulla og sagði: ,,Ég held ég viti hvar sólin er.“ ,,Það er ómögulegt“ sagði stelpan. ,,Nei það er ekkert ómögulegt sagði konan. Sólin er þarna einhvers staðar, þið sjáið hana bara ekki.“ Maðurinn fór en stelpan og Sigga Gulla fóru að leita að sólinni. Þær byggðu geimskip og fóru út í geim að leita að sólinni. Þegar þær nálguðust sólina varð rosalega heitt og þær köfnuðu næstum úr hita svo þær snéru við. Þær fóru aftur til jarðarinnar og fóru heim til sín. Það lögðust þær upp í hengirúmið sitt og drukku límonaði. Og steinsofnuðu.
Brákaborg
Ævintýri Andreu
Einu sinni var stelpa sem hét Andrea. Hún var að leika sér en fór síðan í göngutúr. Þá sá hún krókódíl og hval. Hún varð svo hrædd að hún datt ofaní sjóinn. Hún komst sem betur fór uppúr sjónum. En þá hitti hún kerlingu. Kerlingin tók hana og setti hana í pott og ætlaði að fara að sjóða hana. Þá kom Bósi ljósálfur og bjargaði stelpunni. Hann flaug með hana á bakinu í burtu. Eftir smá tíma datt Andrea af bakinu á Bósa ljósálf og niður á jörðina en hún meiddi sig bara pínulítið. Svo klifraði hún uppí tré. Þar voru apar og þegar hún sá þá datt hún niður úr trénu og meiddi sig aðeins meira. En samt klifraði hún aftur upp í tréð og nú urðu apinn og Andrea vinir. Þau fóru í Húsdýragarðinn og ætluðu að eiga heima þar. Andrea hringdi í pabba og mömmu til að láta þau vita. Þá sögðu þau ,,Komdu strax heim, annars komum við og sækjum þig.“ Svo fór Andrea aftur heim til mömmu og pabba.
Hof
Prinsessan og gullriddarinn
Einu sinni var gullriddari. Hann var mjög sterkur og gat sigrað alla dreka og vonda riddara. En hann gat ekki sigrað einn mann en sá maður var með kórónu og horn. Samt gat gullriddarinn drepið 1000 dreka í einu.
Prinsessan átti heima á Laugaveginum. Prinsessan fór alltaf að gefa dýrunum og góða drekanum að borða. Drekinn bjó hjá eldfjallinu Kötlu. Eitt sinn þegar prinsessan var að gefa dýrunum þá kom vondur dreki og sagði prinsessunni að fara út í skóg að týna ber. ,,Ég kem þangað kl 100.“ Prinsessan fór að týna ber en hún vissi ekkert hvenær klukkan yrði 100. Drekinn ætlaði að borða prinsessuna en það vissi prinsessan ekki. En þá kom gullriddarinn og drap drekann og bjargaði prinsessunni.
Múlaborg
Tunglið sem tröllið át
Einu sinni var geimvera, Hún fór í geimflaug og flaug beint á tunglið og tunglið brotnaði. Þá kom tröll og borðaði tunglið en veiðimaðurinn kom og skaut á tröllið svo það dó. Kóngurinn var í kastalanum sínum, hann lét skera gat á magann á tröllinu og tók tunglið og setti aftur upp í himininn. Kóngurinn átti prinsessu en vondur dreki kom inní kastalann og náði í prinsessuna og fór með hana í hellinn sinn. Þá kom prins sem vildi giftast prinsessunni og drap drekann og fór með prinsessuna heim til sín. Kóngurinn fór svo í geimflaug og flaug útí geim að heimsækja tunglið.
Litla ljósið
Einu sinni var lítið ljós sem stækkaði og fór uppá stól. Þá rigndi á ljósið og svo kom sandur sem festist á ljósið. Þá kom tröll og hélt að þetta væri tröllamatur og borðaði ljósið. Þá kom góð lítil tröllskessa sem greip í höndina á tröllinu. Hún sá ljósið í maganum. Hún fór með tröllið heim í helli og náði í veiðistöng og veiddi ljósið uppúr maganum á því. Nú náði litla ljósið í síma og hringdi í pabba ljósið. Og mömmu og pabba ljósið komu og sóttu litla ljósið og fóru með það heim til ömmu ljóssins og þau fóru að leika sér. Amma ljós átti nefnilega enga eldavél og gat ekki boðið þeim uppá kökur.
Sunnuborg
Álfurinn
Einu sinni var álfur sem bjó með fjölskyldunni sinni í litlu húsi. Hann gat flogið út um allt með vængjunum sínum. Einn daginn ætlaði hann að fljúga með húsið sitt til Afríku. Hann batt spotta í húsið en svo missti hann húsið og það brotnaði. Þá fór hann að gráta. En svo lagaði hann húsið sitt og flaug aftur með það og nú komst hann alla leið til Afríku. Þar fann hann ljón sem hann setti í ljónabúr sem var inní húsinu. Svo flaug hann aftur með húsið heim til sín og hafði ljónið í búrinu hjá sér.
Til baka