Vefsíða Borgarbókasafns

Æringjaljóð - janúar og febrúar 2011


Rauðhóll

Vinaleikskólinn
Allir eru vinir
og góðir við hvern annan
og leika sér saman
það má ekki rífast.
Ef einhverjum er illt í hálsinum
þá verðum við góð við hann
við knúsum hvert annað.
Það má ekki meiða.
og ekki skilja neinn útundan
vinir leika sér með kubbum
og búa til eitthvað fallegt.

Blómin 
Blómin vaxa úr grasi
í garðinum og skóginum
fjólublá, hvít, rauð og gul
hvítt blóm í höfði
bleikar rósir
rauðar rósir
blár rósir
appelsínugular rósir
blómin vaxa úr grasi.

Kvarnaborg

Dýraljóð
Músin er að leika sér
músin er að borða ost
hesturinn borðar gras
kötturinn er að leika sér
kötturinn eltir músina
geitin hoppar yfir skurð
og borðar gras
kýrin gefur okkur mjólkina
hvolpurinn geltir
hundurinn geltir
úti er ævintýri!


Reynisholt 

Álfar í tré
álfar í tré
álfar í álfastein
álfar í loftinu
álfar með vængi
þeir eru litlir
og fljúga í loftinu.
Álfadísir í kjól!
stundum ósýnilegar
sljúga til vinkonu sinnar!
Leika sér með dúkkur!
Borða laufblöð af trjánum!
Búa í dimmum skóg!
Búa í björtum skóg!
Álfar í tré!

Blár vetur
Úti er snjór.
Það er vetur.
Allt er blátt!
Á sumrin er allt grænt!
Þá er gaman!
Á veturna er líka gaman!
Þá er snjór.
Himininn er blár og rokið!
Tunglið er líka blátt!
Við löbbum í snjónum
við rennum okkur
og mokum.


Maríuborg

Á ströndinni
"Það heyrist í sjónum,
í kuðungnum"
sagði stelpan.
Hún lék sér á ströndinni með skel
og bjó til sandkastala
og lét kuðunginn á kastalann til skrauts!

Hún lék sér í sjónum
og synti,
Sjórinn var blár.
Ég var á ströndinni
og óð í sjónum
og týndi skeljar.

Það er gaman á ströndinni.
Það er rosa gaman á ströndinni.


Sólin
Sólin er uppi á himninum
svo fer hún niður
hún eltir bílana
hún fer bakvið fjöllin.
Hún er að fela sig.
Þegar sólin skín 
líður öllum vel í hjartanu
og öllum er hlýtt.
Sumir fara í sólbað
og leika sér á ströndinni.
Þegar sólin kemur upp
á morgnana
vakna allir.
 

Blásalir

Hjartað
Hjartað syngur
Búmm, búmm
Við getum ekki lifað
án hjartans.
Þegar ég er veikur
er mér illt í hjartanu
líka þegar ég er sorgmæddur.


Dalskóli

Drekaljóð
Drekinn hvæsti
og spúði eldi
Þetta er vondur dreki
Drekar geta líka verið góðir
En þetta er vondur dreki.
Hann flaug til sólarinnar
Hann spúði eldi á sólina
svo sólin brann
sólin varð mjög heit
og allt varð heitt
drekinn lifir ennþá.
hann á heima í helli
en á enga vini.

Rauðaborg

Kisan segir mjá!
Kisan segir mjá.
Blettatígur hvæsir hátt.
Eðlan gefur frá sér hljóð
og borðar frosk.

Kisan segir mjá

Drekinn spúir eldi
og blæs og hvæsir.
Hundurinn segir voff
apinn segir úhú aha.
Vísundurinn er loðinn
Hann sér ekkert út um augun.

Kisan segir mjá!


Árborg

Veturinn
Það er gaman að leika
í snjóboltakasti
gaman að búa til snjókarl
ég fer stundum í snjóboltakast
og fer á skíði
blómin eru dáin
þau deyja á veturna
en ég bý til snjóengla
í snjóinn
og fer á snjóþotu
það er svo gaman að leika
í snjónum.


Rofaborg

Krummaljóð
Krummi krúnkar
krummi stelur
Krummi stelur steinum
sem glitra
gefur ungunum sínum.
Krummi stelur
en samt er hann góður.
Hann borðar brauð og orma
en stundum fugla.
Krummi á heima í tré
og byggir hreiður.
Hann stelur stundum böngsum
og spýtum
og lætur í hreiðrið!
Krummi er góður.
Við erum Krummar


Heiðarborg

Sólin skín á daginn
Sólin skín á gluggann
sólin skín á mann
og maðurinn verður brúnn.
Svo kemur nóttin
og þá kemur myrkrið
en stjörnunar skína
þá koma geimverurnar
en þær koma bara á nóttinni
og snjórinn kom um nóttina!

Og ég sá geimverurnar.
Um morguninn
þegar ég fór út.
Þarna var geimflaugin.
Ég kíkti inn um gluggann
geimveran að fikta
Í tökkunum
og þá sprakk allt.
og ég sá þær aldrei meir.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�