Vefsíða Borgarbókasafns

Saman á safninu


Á Borgarbókasafni er alltaf mikið um að vera fyrir börn og fullorðna og er áhersla lögð á viðburði og dagskrár sem byggja á þátttöku hins almenna borgara. Við bjóðum gjarnan fram húsnæði og aðstöðu fyrir ýmsa viðburði og erum ávallt opin fyrir nýjum hugmyndum og samstarfi. Ef þú lumar á góðri hugmynd, hikaðu ekki við að hafa samband: gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is

Í hverri viku

Fjölskyldumorgnar (september - maí)
Fjölskyldumorgnar eru ætlaðir fjölskyldum ungra barna. Þeir eru á miðvikudögum í Gerðubergssafni og á fimmtudögum í aðalsafni og hefjast kl. 10.30. Af og til er boðið upp á dagskrá sem tengist uppeldi og umönnun barna. Kaffi og te á boðstólum fyrir fullorðna og bækur og leikföng fyrir börnin.

Heilahristingur (september - maí)
Heilahristingur er heimanámsaðstoð fyrir börn og unglinga. Heilahristingurinn fer fram í aðalsafni, Gerðubergssafni og Kringlusafni. á þriðjudögum og fimmtudögum.

Kvöldgöngur úr Kvosinni (júni-ágúst)
Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á miðbæjargöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum kl. 20. Lagt af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.

Lesum blöðin saman (september - maí)
Lesum blöðin saman“ er fjölmenningarleg þjónusta sem boðið er upp á í aðalsafni Borgarbókasafns og felst í því að starfsmaður bókasafnsins aðstoðar þátttakendur við að fara yfir helstu fréttir og bendir á það sem er í brennidepli hverju sinni. Við lesum blöðin saman alla fimmtudaga kl. 17.30.

Prjónakaffi í Ársafni (það er prjónað árið um kring í Ársafni)
Það er prjónað af miklu kappi í Ársafni alla þriðjudaga kl. 13-15. Boðið er upp á kaffi og eru allir velkomnir með handavinnuna.

Sunnudagar eru barnadagar (september - maí)
Það er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sunnudögum í aðalsafni og Gerðubergssafni yfir vetrartímann. Sögustundir, föndur, kvikmyndasýningar, leikrit og margt, margt fleira. Dagskráin hefst kl. 14 í Gerðubergssafni og kl. 15 í aðalsafni.

Í hverjum mánuði

Leshringir
Leshringir Borgarbókasafns verða fjórir í vetur. Tveir eru í aðalsafni, glæpasöguhringur og "gamalt og gott", í Ársafni er lesnar "konu- og karlabækur" og í Foldasafni eru teknar fyrir alls konar bækur.  

Prjónakaffi í Sólheimasafni (september - maí)
Boðið er upp á prjónakaffi fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 17-19. Allir velkomnir með handavinnuna, heitt á könnunni. Prjónakaffi haust 2011: 1. september, 6. október, 3. nóvember og 1. desember.

Söguhringur kvenna (september - maí)
Söguhringur kvenna er eitt fjölmenningarlegum verkefnum Borgarbókasafns en eins og önnur verkefni er söguhringurin opinn öllum. Söguhringurinn hittist fyrsta sunnudag í mánuði á 6. hæð í aðalsafni kl.  14.

Origami
Origami Ísland, sem er félag áhugafólks um origami, leiðbeinir við gerð origamis þriðja sunnudag í mánuði í aðalsafni. Origami er skemmtilegt og þroskandi tómstundagaman og er víða notað til kennslu.

Á hverju ári

Ljóðaslamm
Á safnanótt í febrúar stendur Borgarbókasafn fyrir ljóðaslammi þar sem ungt fólk kemur saman og etur kappi í orðlist. Frábær skemmtun fyrir alla.

Myndasögusamkeppni
Borgarbókasafnið stendur fyrir myndasögusamkeppni fyrir ungt fólk í apríl, maí ár hvert.

Árið um kring

Á Reykjavíkurtorgi aðalsafns eru sýningar allt árið um kring. Þar sýna listamenn sem eiga verk í Artótekinu auk fjölmargra annarra listmanna, nemenda, ljósmyndara og fleiri. 

Kamesið
Kamesið er fjölnota rými á 5. hæð aðalsafns sem stendur almenningi til boða að nýta sér og þar er alltaf eitthvað um að vera allan ársins hring. Rýmið hentar undir viðburði af ýmsu tagi, s.s. sýningar á kvikmyndum og vídeóverkum, upplesturs, söguflutnings, kynninga, uppistands, leiksýninga, tónleika og fleiri uppákoma sem ekki þarfnast stórs rýmis.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�