Langar þig að lesa íslensku blöðin og skilja hvað er að gerast á Íslandi?
Starfsmaður Borgarbókasafns Reykjavíkur hjálpar þér að:
-lesa blöðin,
-kynnast ýmsum blöðum og netmiðlum
-leita að fréttum
-skilja fréttir
-skilja orðin í fréttunum
-skilja af hverju þetta er í fréttum
„Lesum blöðin saman“ er fjölmenningarleg þjónusta sem boðið er upp á í aðalsafni Borgarbókasafns og felst í því að starfsmaður bókasafnsins aðstoðar þátttakendur við að fara yfir helstu fréttir og bendir á það sem er í brennidepli hverju sinni. Þátttakendum eru einnig bent á hvernig hægt er að taka virkan þátt í samfélaginu með því að koma á framfæri greinum og fréttum í íslenska fjölmiðla. Þátttakendum gefst einnig tækifæri til að kynnast þeim mikla fjársjóði sem Borgarbókasafn hefur upp á að bjóða, hitta nýtt fólk og styrkja tengslin.
„Lesum blöðin saman“ er alla fimmtudaga í september til maí kl. 17.30 á 5. hæð í aðalsafni, Tryggvagötu 15. Allir áhugasamir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Dreifmiðar á ensku um „Lesum blöðin saman“ til útprentunar (0,91mb)

Til baka