Æringjaljóð - maí og júní
Sælukot
Sumarið og sólin
Mér líður vel í hjartanu
Úti er sól,
úti er gaman
Ég leik mér úti.
Blómin vakna
og dansa í sólinni
Blómin og sólin
eru glöð eftir veturinn
Himinn er blár.
Hann er góður við sólina.
Vesturborg
Allt á svörtum himni
Stjörnur í loftinu.
Gull í hárinu
Fiðrildi í hárinu
Allt á svörtum himni
Blóm í moldinni.
Blóm útí garði.
Skóflur og fötur
í sandinum
Hjól í skúrnum
Mitt hjól er úti
og ég fer að hjóla.
Geislabaugur
Á ströndinni
Sjórinn er blár.
Mjúkur sandur
á ströndinni.
Þar búum við til sandkastala.
Í sandinum.
Kolkrabbar í sjónum
Krabbar að bíta í tásunar
Við leikum okkur
á ströndinni.
Í sandinum.
Það er sumar
Og gott veður.
Gullborg
Hátíðin!
Fórum í göngutúr
Fengum okkur pulsu
Fórum í skrúðgöngu
Í góða veðrinu.
Íþróttaálfurinn og Solla Stirða
komu í heimsókn
Við gerðum æfingar.
Allt var skreytt.
Gerðum kórónur,
sópuðum stéttina
og gerðum allt fínt úti.
Ég grillaði með pabba mínum
Pabbi minn gaf mér pulsu.
Ég og vinkona mín
lékum okkur saman
Í sandinum.
Svo fórum við heim.
Mánagarður
Fröken Jörð og örninn!
Fröken Jörð og örnin!
Örninn í leit að mat
Örninn finnur orma
Og stelur sér mat.
Hákarlinn borðar fiska!
Krókódíllinn borðar mannfólkið
En jörðin er falleg
og stjörnurnar líka.
Mýri
Ég sá....
Tré eru svört, grá og brún!
Svo koma græn laufblöð!
Í trénu er hola sem íkornar búa í.
Eru íkornar gráir?
Eða brúnir eða appelsínugulir?
Og spæturnar búa til göt í tréin
Þá koma pöddur út og hún étur þær.
Græn laufblöð vaxa á trjánum
Og líka ber.
Ég sá íkorna á Íslandi!
Ég sá krabba í fjörunni!
Ég sá dauðan krabba!
Ég sá skjaldböku!
Hún getur bitið voðalega fast.
Ég snerti einusinni dauðan krossfisk.
Ég sá eitt sinn marglyttu.
Ég sá marglyttu á bát
Ég sá gulan frosk
og álf í tré!!!
Ós
Fiskaljóð
Froskur, froskur breyttu mér í frosk
Fiskur, fiskur breyttu mér í fisk
Bókavera breyttu mér í fisk.
Fiskar synda í hafi
Fiskarnir fara út í öldurnar
Í gusurnar.
Fiskur fiskur breyttu mér í hafið bláa.
Norn, norn breyttu mér í fisk.
Fiskurinn prumpar
Fiskurinn er gullfiskur
Fiskurinn er silfurfiskur
Hann borðar brauðmola,
risa belju og svín
og brjóstarhaldara.
Fiskurinn borðar gras.
Skrítni fiskurinn syndir út í sjó.
Grænaborg
Stjörnurnar
Stjörnur á himni.
Stjörnur lýsa
Himininn er blár
og stundum svartur
og grár þegar rignir.
Á nóttinni er himininn svartur
Á nóttinni skína stjörnurnar
Á daginn kemur sól
Nema þegar er vont veður
og það rignir.
Eða snjóar eins og á haustin
Á daginn eru stjörnurnar
hátt uppí himninum.
Þær sjást ekki
nema í Sögubílnum.
Skerjagarður
Krummi og álfurinn
Krummi er svartur
hann sest á hvítan stein
Krummi er svartur
hann sest á græna grein.
Þá kemur álfur
Og álfurinn flýgur út í skóg
Svo flýgur hann til Íslands.
Hann fer á bóksafnið.
Þar misstir hann vængina.
Krummi kom á bókasafnið.
Hann fótbrotnaði.
og fór á spítala
og fékk gifs.
Forsetinn kom á bókasafnið!
Hann tók krumma með
á Bessastað
Grandaborg
Sjór og sumargleði
Skeljar á ströndinni.
Öldur á sjónum
Klettar við sjó
Kuðungar á ströndinni
Fiskar í sjónum
Krossfiskar í sjónum
Hvalur í sjónum
Höfrungar í sjónum
Hoppukastali í grasinu
Grillaðar pulsur á grasinu
Sólstafir Marargata
Fuglar
Fuglar fljúga á vængjum.
Þeir segja kvak, kvak
Og verpa eggjum.
Hænurnar gogga
og segja gaggalagú.
Fuglarnir búa til hreiður
fyrir eggin sín
Og ungarnir opna eggin
og koma út
Ég hef séð hreiður
og egg í hreiðri.
Og ég hef séð unga
á gangstéttinni.
Ungarnir deyja
ef mamman fer frá þeim.
Úlfurinn borðar unga.
Kisa borðar unga.
Fuglarnir borða orma.
Þeir synda á sjónum
og ég gef þeim brauð.
Máfarnir stela brauðinu
frá litlu fuglunum.
Dáinn fugl!
Ægisborg
Í sjónum
Fiskar að synda í sjónum
Kolkrabbar í sjónum
Ég leita að mömmu í sjónum
Það er risakolkrabbi í sjónum
Það er hafmeyja í sjónum
Hún syndir í sjónum
Það er ekki mamma
Sjórinn er blár
Sjórinn er saltur
Hákarlar synda í sjónum
Krókódílar synda í sjónum
Sverðfiskar synda í sjónum
Bátar á sjó
Öldur á sjó
Atlantis sökk í sjó..
Himininn
Stjörnurnarnar á himninum
eru glansandi að sjá.
Stjörnurnar eru fallegar
hvít ský á himni.
Stjörnurnar og tunglið
glansa á himninum.
Þær glitra á himninum
með tunglinu.
Himininn er blár á daginn.
Himininn er fallegur á daginn
Himininn er fallegur á nóttunni
Himininn er flottur á daginn
Hann er blár að sjá.
Og sólin skín.
En stundum á nóttinni
er sólin bleik og gul.
Til baka