Vefsíða Borgarbókasafns

Æringjaljóð - ágúst og september


Steinahlíð

Litaljóð
Gulur, hvítur,
fjólublár, rauður
svartur, hvítur,
grænn og blár...

Sólin er gul
Skýin eru hvít
Rósin er fjólublá
Blóðið er rautt
Úlfurinn er svartur
Snjórinn er hvítur
Grasið er grænt
Himininn er blár


Skýjaborgir

Sólin skín
Sólin er björt og hlý
sólin er falleg
Hafið er blátt og heitt.
Mér líður vel
sólin skín á fuglana
liljurnar dansa dátt og syngja glatt.
Hafið er blátt og slétt.
Sólin er heit.
Sólin skín á blómin fín.
Mér líður vel í sólinni.


Garðaborg

Himininn
Stjörnurnar þjóta um himininn
þær eru gular
þær skína um nætur
á veturna
á daginn er himininn blár
stundum ljósblár.
Dökkblár um nætur.
Á himninum eru ský og sól
stjörnur og tungl
þaðan koma geimverur
þær eiga heima í geimnum.
Fuglar fljúga um himininn
flugvélar og þotur þjóta um himininn
himininn er fallegur


Hlíðaskjól

Englaljóð
Einu sinni fór engill
í göngutúr
hann flaug af stað
kom auga á hest.
Þá kom annar engill.
Þeir dáðust að fötum hvors annars
þeir fóru að skemmta sér
og flugu svo heim
í englahöllina
í himninum.
Þar var hunangið bleikt
og blómin ilmuðu yndislega
þar voru börn
sem voru dáin
og urðu að englum.


Draumaland

Á himninum
Sól í hjarta
sól á himni
himininn blæs vindi
ský á himni
stjörnur á himni
stjörnurnar eru bláar
tunglið er gult
álfar fljúga um himininn.
Og himininn er blár.


Álftaborg

Sólin
Sólin er brennd
sólin er gul.
Flugvélarnar fljúga í sólina
og bráðna
eins og bráðinn ís.
Sólin er hátt á lofti
sólin er á himninum
sólin sest á kvöldin

Kisuljóð
Kisa borðar fisk
kisa borðar bara fisk
kisa borðar mús
kötturinn hleypur
kötturinn mjálmar
kötturinn dansar
kisa er mjúk
hún er hvít eða bleik.
Ég á bangsa sem heitir kisa
hún er svört og hvít.
Kötturinn hleypur.


Brákarborg

Álfaljóð
Álfar sofa í trjánum
og þeir dansa álfadans
álfar geta flogið
álfar eru með vængi.
Þeir eiga heima í trjám.
Sumir búa í steinum
þeir sofa lengi.
Álfar eru með vængi.


Kvistaborg

Skrítin dýr
Mig langar að tala um
hesta og kindur.
Kettling sem keyrir bíl.
Mömmu mö sem rólar.
Hest sem rólar með.
Kýr sem var að baula
hest og hund sem hlaupa.
Ég elska dýr.

Krókódíllinn étur allt
Krókódíllinn
étur folald
étur úlf
étur bók
étur klósett
étur apa
étur bangsa
étur kúk
étur grís
étur hendi
étur sebrahest
étur ekkert
og étur mig.


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�