Vefsíða Borgarbókasafns

Kíktu á bókasafnið!


Borgarbókasafn, ásamt stofnunum í Reykjavík og í Asturiashéraði á Spáni, tók þátt í Comenius Regio verkefni frá 2010 til 2011. Yfirskrift verkefnsins var SPICE, sem annars vegar stendur upphafsstafi landanna og hins vegar fyrir Student – Parents – Interculturality – Community – Education, en verkefnið var um fjölmenningu og móttöku innflytjenda.

Þær íslensku stofnanir sem tóku þátt í verkefninu fyrir utan Borgarbókasafnið voru Þjónustumiðstöð Miðbæjar og Hlíða, Austurbæjarskóli, Háteigsskóli, frístundamiðstöðin Kampur og Tækniskólinn. Spænsku stofnanirnar voru Consejería de Educación y Ciencia, Alfonso II, Pando, La Magdalena, Calderón de la Barca, Los Campos, ACCEM og CPR. Kynna má sér verkefnið sér nánar á heimasíðu þess: http://comeniusregiospice.wordpress.com/

Eitt af framlögum Borgarbókasafnins til þessa verkefnis voru kynningarmyndbönd um safnið á átta tungumálum auk íslensku.

Kíktu á myndböndin hér
 

Danska

Enska

Franska

Íslenska

Litháíska

Pólska

Rússneska

Spænska

Tælenska

 

 

 

 

 

 


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�