Umsagnir
Umsögn frá kennara í Mími símenntun
Langaði bara að segja ykkur frá heimsókninni á Borgarbókasafnið sem var alveg frábær í alla staði. Kynningin var mjög góð og tóku starfsmenn bókasafnsins einstaklega vel á móti okkur. Fyrst kynntu þær safnið og starfsemina þar og vöktu sérstaka athygli á starfseminni t.d. kaffifundum fyrir konur af erlendu bergi brotnar (fyrsta sunnudag í hverjum mánuði), barnastarfinu o.fl. Svo var farið í ratleik sem var einfaldur en mjög vel upp settur, því nemendur lærðu vel á safnið með því að taka þátt í leiknum - bæði íslenskt og erlent efni. Allir voru mjög áhugasamir og hreinlega uppnumdir yfir safninu og möguleikum þess. Ekki var gleðin minni þegar þau fengu öll gefins árskort í safnið (nokkrir voru þegar búnir að ákveða að kaupa sér kort áður en það kom í ljós). [...] Held að þessi heimsókn verði til þess að hluti hópsins, a.m.k., komi til með að nýta sér safnið í framtíðinni og styðji þannig við íslenskunámið og hjálpi til við aðlögun að samfélaginu. Ég mæli því eindregið með verkefninu, legg til að það verði notað fyrir fleiri námshópa t.d. þá sem eru lengra komnir í íslenskunáminu.
Í heildina var heimsóknin bæði skemmtileg, fræðandi og gagnleg og Borgarbókasafnið á hrós skilið fyrir verkefnið.
Til baka